efnahagsmál.
Hæstv. forseti. Ríkisstjórnin lýsti því yfir fyrir fram að þensla yrði í efnahagsmálum á kjörtímabilinu. Þensla vegna stórframkvæmda varð ekki sú sem áætluð hafði verið en viðskiptabankarnir settu af stað meiri þenslu á húsnæðislánamarkaði og vöxtur bankakerfisins og útrásarfyrirtækjanna varð meiri en áætlað var.
Hér er ekki um hagstjórnarmistök að ræða. Þetta eru þróunarverkefni sem bera vitni um mikinn þrótt sem á rætur að rekja til stjórnarstefnunnar. Íslenska hagkerfið og íslenska krónan skila hlutverki sínu vel. Íslendingar eiga sjálfir að ákveða tímasetningar og aðgerðir í efnahags- og gjaldeyrismálum, ekki láta hrekjast til undanhalds eða uppgjafar, heldur standa sig í hlutverki sínu sem frjáls þjóð.
Ég vara við vanhugsuðum dómsorðum stjórnarandstöðunnar um ástandið í íslenskum efnahagsmálum. Ég vara við því að menn vanmeti mikilvægi orkumála, sterkara banka- og viðskiptalífs fyrir sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Það er ástæða til að vara þjóðina við skilningsleysi forustumanna stjórnarandstöðunnar í þessum efnum.
Nú eru bjartar horfur um efnahagsþróunina á þessu ári. Kaupmáttur ráðstöfunartekna heldur áfram að aukast, atvinnuöryggi er tryggt, viðskiptahalli minnkar stórlega og hagvöxtur heldur áfram. Verðbólgan minnkar jafnt og þétt.
Jafnframt eru stór skref stigin til umbóta í velferðarkerfum landsmanna og með skattalækkunum hafa verið ákveðnar miklar verðlækkanir á nauðsynjavörum. Þessar horfur staðfesta árangur stjórnarstefnunnar svo ekki verður um villst.