efnahagsmál.
Virðulegi forseti. Enn og aftur hlýðum við á harmakvein hv. stjórnarandstöðu þar sem halda mætti að allt væri að fara á aðra hliðina í efnahagsmálum þjóðarinnar. Svo er ekki. Mikilvægasta verkefni stjórnmálanna á hverjum tíma er öflug efnahagsstjórn og því verkefni hefur verið sinnt vel og þá sérstaklega með öflugri atvinnuuppbyggingu. Núverandi stjórnvöldum hefur tekist að snúa við þeirri þróun sem var hér áður og er staða ríkissjóðs gríðarlega sterk. (Gripið fram í.) Skuldir hafa verið greiddar niður, hagvöxtur er viðvarandi og atvinnuleysi með því lægsta sem þekkist. Hér erum við með aðra stöðu en þekkist t.d. víða innan Evrópusambandsins. Ráðstöfunartekjur heimilanna halda áfram að hækka og eignamyndun er mikil.
Því er þó ekki að neita að heimilin hafa farið nokkru offari í neyslunni en sem betur fer hefur loks hægt á henni. Hreinar skuldir ríkissjóðs voru í árslok 2001 tæpir 169 milljarðar kr. en í lok síðasta árs voru þær rúmir 74 milljarðar. Þetta er gríðarlega góður árangur og skiptir miklu máli, ég tala nú ekki um í svo litlu hagkerfi eins og við höfum hér. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í sumar og aðhald í stjórn ríkisfjármála hefur leitt til þess að menn eru að ná stöðugleikanum aftur en vitað var að nokkur spenna yrði síðustu ár. Verðbólguspár líta nú betur út og gert er ráð fyrir að verðbólga verði komin í verðbólgumarkmið á síðari hluta ársins. Allt er þetta á réttri leið og væri ekki að gerast nema vegna samhents átaks allra í landinu. Að sjálfsögðu eru það stjórnvöld sem standa í brúnni og sem betur fer hefur áætlunin gengið upp og fram undan er lægri verðbólga sem skiptir öllu máli fyrir heimilin í landinu.