133. löggjafarþing — 63. fundur,  31. jan. 2007.

ákvæði íslenskra laga um hreinsun á strandstað.

[13:50]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Kjarni málsins er sá að annars vegar bera stjórnvöld ábyrgð á því að koma flakinu af Wilson Muuga úr fjörunni hið fyrsta og koma í veg fyrir að alvarlegra slys skapist en orðið hefur nú þegar og beita öllum þeim ráðum sem til eru til að það verði gert hið allra fyrsta. Hins vegar ber að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til þess að varna því að miklu tíðari og stóraukin umferð stórra fraktskip fram hjá Íslandi leiði til þess að hér verði enn þá alvarlegri og enn þá stærri slys á borð við strandið sem hér um ræðir.

Rétt til samanburðar borgar tryggingarfélag fraktskipsins Server, sem strandaði við Noreg með alvarlegum afleiðingum fyrir nokkrum vikum, allan kostnað við hreinsun og björgun á meðan skyldur tryggingafélags Wilson Muuga eru fjarri því að vera í nokkurri nálægð við það. Þetta er sérstaklega ankannalegt miðað við hvað íslensku og norsku siglingalögin eru annars lík, og strand Server var miklu alvarlegra en Wilson Muuga.

En meginmálið er að stjórnvöld axli pólitíska ábyrgð á málinu, tryggi það að flakið af skipinu verði fjarlægt úr fjörunni og komi í veg fyrir að alvarleg slys á borð við þetta gerist með því að færa siglingaleiðina á tilteknum stöðum út fyrir það sem þarf að gera. Nefnt er sérstaklega út fyrir Reykjanes, út fyrir Reyðarfjörð og fyrir Hornstrandir. Það eru fyrirbyggjandi aðgerðir sem stjórnvöld eiga að grípa til nú þegar.

Pólitíska ábyrgðin er skýr, hún er þeirra og því er ástæða til að skora á hæstv. ráðherra samgöngu- og umhverfismála til að samræma þessa löggjöf, breyta lögunum í þessa veru og tryggja að flakið af Wilson Muuga verði fjarlægt úr fjörunni hið fyrsta og komið í veg fyrir að þar skapist alvarlegt umhverfisslys.