loftslagsmál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra fyrir svörin eins langt og þau og stefnan nær, þ.e. til 2012. En það er auðvitað allt of skammt í málefni eins og loftslagsmálum. En það er fagnaðarefni að það sé unnið að mótun langtímastefnu ríkisstjórnarinnar.
En hæstv. umhverfisráðherra verður að svara lykilspurningunum í þessu stærsta máli sem heimurinn glímir við. Evrópa hefur lýst því yfir að hún sé tilbúin til að ráðast í 20–30% samdrátt á næstu 13 árum í mengun. Til þess að ná þeim árangri dugir ekki að fjölga dísilbílum eða veita tollaafslátt af rafmagnsbílum, virðulegur forseti. Til að ná slíkum árangri þarf að grípa til verulegra aðgerða og það fljótt. Þess vegna er spurt: Er ríkisstjórn Íslands tilbúin til þess að ráðast á næsta áratug í verulegan samdrátt í mengun á Íslandi eins og Evrópa hefur kallað eftir eða ætlar ríkisstjórn Íslands að vera bara á línu George Bush og tala um mögulegar tæknilausnir í framtíðinni en halda áfram að menga og menga hér heima? Umhverfisráðherra verður líka að svara því hvort ríkisstjórn Íslands, fyrir utan þetta atriði, ætli að sækja í stóriðjunni auknar heimildir til mengunar eftir 2012. Það er grundvallarspurning sem ráðherrann verður að svara og ef ekki þá verður ráðherrann að svara því miðað við fyrirliggjandi stóriðjuáform, hvernig hæstv. ráðherra ætlar að tryggja það að losun hér árið 2013 sé ekki komin fram yfir 1,6 millj. tonna því að augljóslega verður hún það að óbreyttu.