133. löggjafarþing — 63. fundur,  31. jan. 2007.

svæðisbundin fiskveiðistjórn.

401. mál
[15:14]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Sigurjón Þórðarson) (Fl):

Frú forseti. Við búum við algerlega misheppnaða stjórn fiskveiða. Gögn Hafrannsóknastofnunar segja einfaldlega að aflinn núna sé helmingi minni en fyrir daga þessa kerfis. Þetta er því algerlega misheppnað kerfi. Þetta byggir á því að hafsvæðið hér sé í rauninni einn og sami stofninn, horft sé á þetta eins og eitt mengi og það sé sama hvaðan fiskur er tekinn, að það dregst frá heildaraflanum. Síðan spá menn fyrir um afla næsta árs. Hún er venjulega birt í skýrslu á vordögum. Þetta er svona álíka vitlaust, frú forseti, og að menn mundu áætla t.d. uppskeru úr öllum kartöflugörðum ársins að vori til. Þó er það að mörgu leyti nærtækara vegna þess að menn geta þá a.m.k. séð það fyrir út frá því hversu mikið útsæðið er. Svo má lengi telja. Þetta er eins og að áætla hve mikil berjauppskera verði næstu tíu árin ef við byggjum berjamóa upp hér og þar um landið. Þetta kerfi hefur algerlega misheppnast.

Samt sem áður hefur núverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra haldið algeru dauðahaldi í þetta kerfi vegna þess að hann veit sem er að ef opnast glufur í því getur það hrunið yfir menn. Samt sem áður stangast þetta algerlega á við viðtekna vistfræði, sérstaklega í ljósi þess að þorskstofninn er ekki eins og eitt mengi heldur eru staðbundnir stofnar víðast hvar. Menn geta velt því fyrir sér ef allar aflaheimildir fara í burtu, t.d. úr Grímsey eða Bakkafirði, hvort menn hætti að nýta þau mið. Það gæti orðið miðað við þá stjórn sem nú ríkir. En það er svo einkennilegt að innbyrðis stangast þau rök á sem eru notuð við stjórn fiskveiða, t.d. í sambandi við svæðalokanir. Þá er verið að loka ákveðnum svæðum og það stangast á við að þetta sé eitt mengi og að engu máli skipti hvar fiskurinn er tekinn. En ef út í það er farið er miklu nærtækara að stjórna fiskveiðum á Austfjörðum saman með fiskveiðum í Færeyjum. Það er miklu styttra þar á milli en að hafa þetta sem eitt kerfi og stjórna því með heildarafla með því sem tekið er út af Vestfjörðunum. Þetta er svo vitlaust og þetta er búið að valda svo miklu tjóni fyrir byggðir landsins að maður furðar sig á því að hæstv. ráðherra sem kemur frá byggð sem hefur farið (Forseti hringir.) gríðarlega illa út úr þessu kerfi skuli ekki vilja opna á einhverjar breytingar.