bættir innheimtuhættir.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hefur borið upp fyrirspurn um bætta innheimtuhætti og varpar þar fram fjórum spurningum. Sem svar við fyrstu spurningu þingmannsins má nefna að á 122. og 123. löggjafarþingi lagði þáverandi viðskiptaráðherra fram frumvarp til innheimtulaga. Frumvarpið var einkum byggt á norskum lögum en einnig tekið tillit til laga í Svíþjóð og lagafrumvarps sem þá var í vinnslu í Danmörku. Kveðið var á um heimild til handa viðskiptaráðherra til að setja reglugerð um hámark innheimtukostnaðar.
Þá var gert ráð fyrir í frumvarpinu að sérstök viðvörun væri send skuldara áður en gripið væri til kostnaðarsamra innheimtuaðgerða. Ýmsar athugasemdir voru gerðar við frumvarpið. Meðal annars lýsti Lögmannafélag Íslands sig andsnúið því. Vegna viðbragða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis náði frumvarpið ekki fram að ganga. Ég tel þörf á að skoða að nýju hvort setja eigi innheimtulöggjöf til að treysta stöðu skuldara gagnvart innheimtuaðilum.
Sem svar við 2. spurningu þingmannsins vil ég taka fram að samkeppnisyfirvöld hafa fjallað nokkrum sinnum um mál er tengjast gjaldskrám og gjaldtöku lögmanna. Þannig synjaði þáverandi Samkeppnisráð Lögmannafélagi Íslands um undanþágu til að gefa út gjaldskrá í febrúar 1994 sem tæki m.a. á þóknun í innheimtumálum. Röksemdir fyrir synjuninni voru m.a. þær að leiðbeinandi reglur vegna þess málskostnaðar sem erindið tæki til væru til þess fallnar að hafa áhrif á aðrar gjaldskrár lögmanna og kostnaðartengdar breytingar á þeim. Með því mundu reglurnar sem sótt var um undanþágu fyrir fremur geta dregið úr verðsamkeppni milli lögmanna en aukið hana.
Á árinu 1997 komust samkeppnisyfirvöld að þeirri niðurstöðu að beiting stjórnar Lögmannafélags Íslands á gjaldskrá félagsins við meðferð úrskurðarvalds síns bryti gegn samkeppnislögum. Á árinu 2004 komst Samkeppnisráð loks að þeirri niðurstöðu að um ólögmætt samráð hefði verið að ræða innan Lögmannafélags Íslands þar sem félagið hefði gert og kynnt kostnaðargrunn um rekstrarkostnað lögmannsstofa. Samkeppnisyfirvöld hafa því ítrekað gert athugasemdir við að lögmenn hefðu með sér samráð um gjaldtöku og gjaldskrá. Því er það á nokkrum misskilningi byggt að segja að samkeppnisyfirvöld hafi gagnrýnt þá tilhögun að lögmenn ákvarði einhliða þóknun sína. Samkeppnisyfirvöld hafa með ákvörðunum sínum stuðlað að því að lögmenn ákvarði gjald sitt einhliða en ekki með samráði sín í millum þar sem samráðið leiðir til samkeppnishamla á viðkomandi markaði.
Hvað varðar viðbrögð þingmannsins um viðbrögð ráðuneytisins þá er því til að svara að ráðuneytið hefur ekkert gert til að framfylgja ákvörðunum samkeppnisyfirvalda enda hefur Lögmannafélagið viðurkennt brot sín og látið af þeirri starfsemi sem gagnrýnd var af hálfu samkeppnisyfirvalda.
Sem svar við þriðju spurningu þingmannsins vil ég nefna að ég get tekið undir þau sjónarmið samkeppnisyfirvalda um að einhliða ákvörðun Lögmannafélags Íslands eða eftir atvikum hins opinbera um gjald lögmanna vegna innheimtu geti haft áhrif á gjaldskrá þeirra að öðru leyti, þ.e. á þeim markaði þar sem þeir eiga að keppa um verð. Þannig geti slíkar aðgerðir verið áfram samkeppnishamlandi. Hins vegar tel ég ástæðu til að skoða hvort hægt sé að tryggja réttarstöðu skuldara án þess að það valdi samkeppnishamlandi áhrifum á gjaldtöku lögmanna að öðru leyti.
Vegna fjórðu spurningar þingmannsins tek ég fram að ég er þeirrar skoðunar að skoða þurfi hvort setja eigi löggjöf til að tryggja réttarstöðu skuldara gagnvart innheimtuaðilum eins og áður hefur komið fram. Ég tel einsýnt að ekki verði tími til að leggja fram frumvarp til innheimtulaga á yfirstandandi þingi en ég tel rétt að vinna að þessu máli, að þessum markmiðum.