133. löggjafarþing — 64. fundur,  1. feb. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[10:30]
Hlusta

Forseti (Sigríður A. Þórðardóttir):

Að loknum atkvæðagreiðslum um fimm fyrstu dagskrármálin fer fram umræða utan dagskrár um leigu á aflaheimildum. Málshefjandi er hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Hæstv. sjávarútvegsráðherra Einar K. Guðfinnsson verður til andsvara. Umræðan stendur í hálfa klukkustund.