133. löggjafarþing — 64. fundur,  1. feb. 2007.

stjórn fiskveiða.

432. mál
[11:30]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort verið sé með þessu frumvarpi að leggja stein í götu þeirra sem eru að reyna að hasla sér völl í ferðamannaiðnaði einmitt í þeim byggðarlögum sem hafa farið illa út úr kvótakerfinu. Verður þetta ekki til þess að loka þeirri leið líka? Þá verður mér hugsað til staðar eins og Tálknafjarðar þar sem menn eru að reyna að skapa sér atvinnu hvað varðar veiðar fyrir ferðamenn.

Mér sýnist að með þessu frumvarpi sé verið að setja þetta inn í það alræmda kerfi sem við erum búin að fara svo oft í gegnum hér og hefur engu skilað. Væri ekki réttara fyrir hæstv. ráðherra að leita leiða út úr þessu og minnka reglugerðafarganið sem hefur gengið svo langt að meira að segja fermingarbörnum er bannað að leggja línu í fjöru? Það kom bréf frá hæstv. ráðherra sjávarútvegsmála um að það mætti ekki. Nú á að banna fleira en að leggja línu í fjöru fyrir norðan vegna þess að það gæti að einhverju leyti raskað kerfinu sem hæstv. ráðherra er svo annt um, það virðist líka eiga að koma í veg fyrir að þeir sem hafa farið illa út úr því kerfi geti komið sér áfram í ferðamennskunni.

Það væri fróðlegt að fá að heyra hjá hæstv. ráðherra hvað hann telji þetta vera mikið magn og hvað þrýsti á að setja þetta inn í lög og reglur íslenska lýðveldisins og vera með svona fargan.

Þetta er náttúrlega í takt við annað sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir, að leggja enn meiri atvinnuhöft á landsbyggðina og þar virðist ekkert mega gera.