133. löggjafarþing — 64. fundur,  1. feb. 2007.

stjórn fiskveiða.

432. mál
[11:35]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Það er greinilegt að hæstv. sjávarútvegsráðherra kemst ekki út úr því að hugsa í kerfinu sínu. Það er ótrúlegt að verða vitni að því að Sjálfstæðisflokkurinn sé að leggja hér stein í götu þeirra sem eru að reyna að bjarga sér eftir að búið er að taka af þeim veiðiréttinn. Ef þeir geta mögulega leigt hann fyrir gríðarháa upphæð, eins og komið hefur fram í umræðunni, þá er það í lagi en við heyrðum það í umræðunni fyrr í dag að sá rekstur er nú ekki vænlegur. Fólk reynir því ýmislegt fyrir sér. Það er að fara út í ferðamannaþjónustu en hæstv. sjávarútvegsráðherra vill girða fyrir það líka og koma þessu inn í þetta ljóta kerfi sem hefur nákvæmlega engu skilað.

Væri það ekki leið fyrir Sjálfstæðisflokkinn að reyna aðeins að hugsa hvort ekki sé hægt að auka frelsið eins og við í Frjálslynda flokknum viljum gera? Við viljum auka frelsið, að tína ekkert til hvort litlir koppar séu að renna með færi í fjörðum landsins. Það er alveg fáránlegt að halda að þessar litlu trillur, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að setja á enn meiri höft, valdi því að einhverju leyti að fiskstofnar gefi ekki af sér fyrir þjóðarbúið eins og til er ætlast. Þetta er fáheyrð vitleysa.

Maður furðar sig á að Sjálfstæðisflokkurinn skuli koma með enn eitt frumvarpið í stað þess að leita leiða út úr þessu kerfi eins og við í Frjálslynda flokknum gerum. Menn koma hér og reyna að réttlæta það að höft séu sett á þessa atvinnugrein vegna þess að verið sé að þjóna útlendingum og segja að það séu einhver vandræði.

Það er undarlegt að verða vitni að þessu. (Gripið fram í.) Ég sé að hv. formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins (Forseti hringir.) er skemmt yfir þessum atvinnuhöftum sem verið er að leggja á landsbyggðina.