stjórn fiskveiða.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Jón Gunnarsson fór svo vel yfir þetta mál að ég get tekið undir ræðu hans í heilu lagi. Mig langar samt til að bæta örlitlu við í umræðuna.
Ég vil spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra hverjir hafi kallað eftir þeim ráðstöfunum sem hæstv. ráðherra er að beita sér fyrir. Var það ferðaþjónustan? Ég hef ekki trú á að það hafi verið ferðaþjónustan. Mér er hins vegar alveg kunnugt um að hjá LÍÚ hefur mönnum alltaf verið illa við þessar frjálsu veiðar til eigin nota sem leyfðar eru á Íslandi í dag og þeim þótti það hið versta mál að það skyldi vera haft inni í fiskveiðistjórnarlögunum að menn gætu farið og veitt sér í soðið.
Ég held þess vegna að hæstv. ráðherra, sem segist ekki vera þjónn LÍÚ, sé að framkvæma það sem þeir hafa óskað eftir og taka með einhverjum hætti á þessum málum. Hann klæðir þetta í þann búning að verið sé að opna mönnum leið. Það er engin ný leið opnuð fyrir menn með þessum hætti. Þetta er bara þannig að menn geta ákveðið þetta sjálfir, ef þeir vilja gera út með einhverjum hætti eða veiða meira en þeir geta nýtt til eigin nota eða þeir sem fara til sjós á bátunum þeirra, þá verða þeir að horfast í augu við það að verða að fara inn í gamla kerfið sem er í gangi til að geta selt fisk á markaði. Leiðin sem hæstv. ráðherra er að tala um að opna er galopin. Það er því ástæða til að halda að hæstv. ráðherra telji, og hann ætti þá að upplýsa það hér, að verið sé að svindla, fara á bak við á einhvern hátt, selja á svörtum markaði eða eitthvað svoleiðis og hann ætli að girða fyrir það. Hæstv. ráðherra hefur ekki fært það fram til umræðunnar, a.m.k. ekki enn þá.
Síðan fylgja þessu fjölmörg vandamál. Hvað með allt eftirlitið sem nú þarf að setja upp? Hvernig ætla menn t.d. að fylgjast með því hvort hv. þm. Jón Gunnarsson tekur einhvern aur upp í olíuna, eins og hann nefndi áðan? Eða á þetta kannski að vera þannig að eigi menn bát skuli þeir bara fara einir á sjó og megi ekki taka með sér kunningja til að fara á veiðar? Ég tel enga þörf á því frumvarpi sem hér liggur fyrir. (Gripið fram í: Engin?) Ég tel reyndar að hæstv. ráðherra hafi komist svo að orði í lok ræðu sinnar þegar hann mælti fyrir frumvarpinu að hann vonaðist til þess að málið fengi framgang í þinginu, hann geri sér grein fyrir því að það sé ekki endilega víst að menn fallist á málið en að hann hafi af þjónkun við útgerðarauðvaldið í landinu viljað flytja málið af því að það sé búið að sarga um þetta nógu lengi og hann hafi viljað gera eitthvað fyrir það.
Ég sé engin rök fyrir því að gera þessa breytingu. Það er nóg að fylgja eftir þeim reglum sem eru í gangi hvað þessa hluti varðar, því að ef menn ganga löglega um garða er engin þörf á þessari lagasetningu.
Ég ætla ekki að hafa langt mál um þetta vegna þess að ég tel málið þarflaust. Ég treysti því að hv. formaður sjávarútvegsnefndar bregði ekki vana sínum og fari ekki að halda marga fundi um svona ónýt mál og við getum bara verið rólegir með að leyfa þessu máli að daga uppi eins og svona mál eiga að gera á Alþingi sem engin þörf er á.
Ég vil ljúka máli mínu um þetta frumvarp með því að taka undir það sem hv. þm. Jón Gunnarsson sagði og biðja hæstv. ráðherra að skýra nákvæmlega hvað hann á við með síðari hluta þessarar greinar sem hér er lagt til að sett verði í lögin:
„Um veiðar og afla fer samkvæmt gildandi reglum um veiðar í atvinnuskyni. Ráðherra getur þó með reglugerð sett sérstakar reglur um veiðar og afla, m.a. hvað varðar skyldur skipstjóra, tilkynningar og skýrsluskil.“
Er tilgangurinn með frumvarpinu að hluta til sá að reyna að búa til reglur sem eru eitthvað öðruvísi ef menn ætla að fara þá leið sem hér er til staðar, að menn þurfi þá ekki að skila skýrslum eða færa afladagbækur með sama hætti og aðrir? Hvað vill hæstv. ráðherra hafa öðruvísi ef hann ætlar að setja reglugerð samkvæmt þessari grein? Það væri gagnlegt að fá að vita það nákvæmlega, því að ef þetta verður á einhvern hátt öðruvísi en í hinu kerfinu gæti hugsanlega verið að opnast ný glufa í kerfinu sem gæti undið upp á sig ef það yrði með einhverju móti hagstæðara að gera út í því eða á einhvern hátt léttara að hefja útgerð með því að hafa ferðamann hjá sér um borð þegar maður fer til veiða.