133. löggjafarþing — 64. fundur,  1. feb. 2007.

stjórn fiskveiða.

432. mál
[13:51]
Hlusta

sjávarútvegsráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram og freista þess að svara þeim spurningum sem fyrir mig voru lagðar. Ég gerði í raun almenna grein fyrir tilgangi frumvarpsins í fyrstu ræðu minni og hef í sjálfu sér ekki mjög miklu við það að bæta, þó tvinnast auðvitað inn í þau svör sem ég reyni að gefa við þeim spurningum sem fyrir mig voru lagðar. Ég vona að þau skýri málið að einhverju leyti þó að ég geri í sjálfu sér engar kröfur til þess að menn verði mér endilega sammála.

Menn hafa mjög mikið spurt um það hverjir hafi kallað eftir lagasetningunni og reynt að færa fyrir því rök að það kynnu að vera hinir vondu útgerðarmenn sem hafi veiðiréttinn með höndum og vilji reyna að tryggja að ekki komi til nein veiði inn í landið sem ekki fari í gegnum veiðirétt þeirra. Það er ekki þannig. Sem betur fer hefur verið að eflast og verða til atvinnugrein sem var ekki til. Hún er á mörkum, getum við sagt, sjávarútvegs og ferðaþjónustu (SigurjÞ: Hver kallar eftir þessu?) — Virðulegi forseti. Það er þannig með hv. frammíkallanda að hann vill greinilega aldrei að ég svari spurningum. Ég ætla engu að síður að reyna að gera það án þess að ég þurfi endilega að lúta stöðugum frammíköllum hans. Við sjáum sem betur fer vaxa og dafna mjög athyglisverða atvinnugrein sem við getum sagt að sé á mörkum sjávarútvegs og ferðaþjónustu. Það skiptir ekki máli hvernig við flokkum þetta í rauninni. Ferðaþjónustan er ný og öðruvísi að því leyti að hún byggir á því að til staðar eru bátar í þeim byggðarlögum þar sem þessi atvinnurekstur hefur orðið til. Þeir bátar eru ekki undir stjórn íslenskra skipstjóra, heldur fá menn heimild til að sigla þeim, veiða og koma með aflann að landi.

Ég var viðstaddur þegar þessar hugmyndir voru fyrst ræddar og það fór ekkert á milli mála að menn báru þetta saman við atvinnurekstur í t.d. Noregi. Þá gerðu menn sér í hugarlund að hér yrði um að ræða lítinn afla sem menn mundu flaka fyrir sig og taka með sér heim o.s.frv. Það sem hefur hins vegar gerst og er auðvitað bara ánægjulegt og sýnir stöðuna við Ísland er að aflinn er mun meiri en það sem menn taka til sín til eigin neyslu. Þetta eru útlendingar í langflestum tilvikum. Það er takmörkunum háð hvað þeir geta tekið með sér af varningi vegna reglna flugfélaga. Eftir úthaldið er því til staðar heilmikill fiskur og þær ferðaþjónustuútgerðir sem þarna hafa orðið til eru þá með heilmikil verðmæti í höndunum. Þeim verðmætum vilja þær auðvitað koma í verð, gera sem mest úr þeim, búa sér til tekjur og selja aflann til vinnslu í fiskvinnslustöðvum.

Þá er alveg ljóst mál að hér er ekki um hefðbundna tómstundaveiði að ræða, eins og menn hafa mikið rætt um, heldur er um atvinnuveiði að ræða og menn leggja þá aflann í land til vinnslu og fénýta hann. Þá færir hann þeim tekjur sem standa síðan undir rekstrinum. Þegar menn fóru að skoða þetta kom á daginn að hinn lagalegi grundvöllur til starfseminnar sem hefur verið að slíta barnsskónum í eitt til tvö ár var mjög hæpinn. Við vorum á lagalega hálum ís varðandi þetta mál. Það var ekki þannig að stjórnvöld legðu stein í götu þessa atvinnuvegar. Öðru nær. Menn reyndu þvert á móti á grundvelli þeirra laga sem til staðar voru að teygja sig eins langt og hægt var til móts við þarfir atvinnugreinarinnar. Meðal annars var tekin sú ákvörðun að heimila þetta, að bátarnir mættu róa án þess að um borð væru lögskráðir skipstjórar með íslensk skipstjórnarréttindi. Þeim voru hins vegar settar ákveðnar skorður um hversu langt þeir mættu sigla o.s.frv. Á þeim grundvelli varð atvinnureksturinn til. Það sem þurfti hins vegar að gera til að atvinnureksturinn gæti gengið áfram var að setja upp einhvers konar fyrirkomulag, að bátarnir gætu síðan fénýtt afla sinn, selt hann, og voru þá auðvitað komnir í samkeppni við aðrar útgerðir, smáar sem stórar, aðra sjómenn ekki síður. Þess vegna er ekkert óeðlilegt þegar við horfum á þetta — og þetta eru auðvitað atvinnuveiðar — að atvinnureksturinn falli þá undir atvinnuveiðar með einhverjum hætti. Frumvarpið gengur út á það.

Frumvarpið hefur þann yfirlýsta tilgang eins og sá sem flutt hefur frumvarpið hefur margoft sagt, sá sem hér stendur, að reyna að opna atvinnugreininni leið til að skapa sér tekjur. Það er ekkert annað sem býr að baki frumvarpinu. Það eru engar annarlegar hvatir. Menn spyrja: Er einhverjum órótt yfir þessari nýju glufu? Óttast menn að þetta sé mikið magn? Ég vona sannast sagna að þetta verði mikið magn. Ég vona að atvinnureksturinn verði blómlegur. Ég hef fulla trú á því, miðað við það sem menn segja sem hafa starfað í þessum atvinnurekstri, að það séu heilmiklir möguleikar í þessu. Við sjáum ekki fyrir endann á þessu en það eru heilmiklir möguleikar að mati þeirra manna sem fást við þessa hluti. Mér er því ekki órótt yfir þessu. Öðru nær. Með frumvarpinu freista ég þess einmitt að festa atvinnugreinina í sessi, gera hana betur í stakk búna til að gera það sem hún á að gera. (JÁ: Báðu þeir um það?) Þetta er ekki um það sem ég held að hv. 5. þm. Norðvest. hafi sagt áðan, að ég hefði sagt að þetta yrði meira spennandi við að fara inn í kvóta. Það er ekki það sem fyrir mér vakir og held að það sé dálítill útúrsnúningur hjá mínum góða félaga og vini. Þetta hefur ekkert með það að gera. Ég er einfaldlega að segja að ég tel að þessi atvinnugrein geti orðið mjög spennandi, sé öllu heldur þegar mjög spennandi og á margan hátt mjög áhugaverð.

Hér hefur líka verið spurt um ákvæði í frumvarpinu þar sem segir: ,,Ráðherra getur þó með reglugerð sett sérstakar reglur um veiðar og afla, m.a. hvað varðar skyldur skipstjóra, tilkynningar og skýrsluskil.“ Menn hafa velt fyrir sér hvaða nýmæli sé á ferðinni. Það er alveg rétt að þetta gæti verið nýmæli vegna þess að hér er um að ræða atvinnugrein sem byggir á dálítið öðrum prinsippum en hefðbundin útgerð. Það eru ekki skráðir skipstjórar um borð. Þeir menn sem róa eru farnir eftir viku. Hins vegar eru í gildandi lögum um stjórn fiskveiða, um umgengni nytjastofna sjávar og í öðrum lögum tiltekin ákvæði sem lúta að ábyrgð skipstjóra. Það er alveg augljóst mál að staðan er öðruvísi. Það er ekki með sama hætti og skipstjóri sem ráðinn er til heillar vertíðar eða eitthvað þess háttar. Þess vegna þarf að hafa um þetta sérstakar reglur. Ábyrgðin verður þá væntanlega meiri á herðum ferðaþjónustuútgerðarinnar hvað ýmsa hluti varðar.

Ég er ekki í stakk búinn til að segja á þessari stundu nákvæmlega til um hvaða skýrslur um verður að ræða. Það er ekki hugmyndin að fara að búa til eitthvert skýrslufjall í tengslum við þetta, en almennar upplýsingar sem taldar eru nauðsynlegar ýmissa hluta vegna, m.a. vegna öryggis manna, verða að vera til staðar. Einhver verður að vera ábyrgur fyrir því að þær berist. Við erum að tala um atvinnuveg sem við gerum okkur í hugarlund að geti verið stundaður af einhverjum þúsundum manna á sumrin á Íslandi, frá vori til hausts. Einhverjar upplýsingar þurfum við að hafa, þótt ekki nema væri vegna þess að við vildum kannski hafa einhverjar upplýsingar og hugmyndir um fiskigöngur á grunnslóð o.s.frv. Það er ekkert ankannalegt við það. Einhvers staðar þarf að vera einhver ábyrgð fyrir því að þetta sé til staðar. Það er ekki verið að fara fram hjá neinum. Það er ekki verið að gera neitt óeðlilegt. Það er einfaldlega verið að setja þetta ákvæði vegna þess að það háttar öðruvísi til um útgerð þessa báta en almenna útgerð í landinu.

Menn hafa dálítið velt fyrir sér líka hvort hér sé verið að reyna að koma í veg fyrir tómstundaveiði, að hv. þm. Jón Gunnarsson geti farið með stöngina sína með vinum sínum út á sjó eins og hann hefur gert og nýtt hana eins og hann hefur gert. Það er ekkert í frumvarpinu sem á að koma í veg fyrir það. Það er ekki verið að reyna með nokkrum hætti að raska núverandi ástandi tómstundaveiðanna. Nákvæmlega hið sama er með hvalaskoðunarbátana, ef hluti af því að reyna að skoða hvali er jafnframt að leyfa mönnum að renna fyrir með sjóstöng í einhverjum mæli sé ég ekki hvernig frumvarpið ætti að hafa nein áhrif á það. Það er einfaldlega verið að koma alveg nýrri atvinnugrein inn í lagaumhverfi sem gerir henni kleift að búa sér til tekjur. Þeir báðu auðvitað fyrst og fremst um að séð yrði til þess að þeir gætu fénýtt afla sinn, gætu haft þessar tekjur. Þeir menn sem töluðu við mig lögðu svo sem ekki til neinar útfærslur, enda er það ekki þannig sem lagafrumvarp verða til.

Ég varð ekki var við þann mikla þrýsting sem menn ímynduðu sér að hefði komið frá LÍÚ. Ég kannast ekki við hann. Ég get hins vegar ekki neitað því að stöku sjómenn og stöku útgerðarmenn hafa talað um þessi mál við mig. Það eru til sjómenn sem hafa fundið að því að til staðar sé heimild fyrir þessa menn til að róa á þessum bátum án þess að hafa hefðbundin skipstjórnarréttindi. Það liggur alveg fyrir. Ég geri ráð fyrir að hv. þingmenn hafi heyrt slíkar viðbárur. Því er ekki að neita að til eru þeir sjómenn, t.d. trillusjómenn, sem hafa sagt það óeðlilegt að menn rói á sama sjó og aðrir þurfi að skaffa kvóta en hinir ekki. Ég lít ekki á þetta sem þrýsting. Þetta eru bara sjónarmið í umræðunni. Það er alveg rétt að í dag er þetta ekki mikill afli. Ég hef ekki í höndunum hvað það getur verið en það er ekki neitt sem breytir neinu stóru.

Við skulum hins vegar vona að það geti orðið talsverður afli á þessum bátum. Við skulum vona að þetta verði alvöruatvinnugrein sem þróist skemmtilega. Það er alveg rétt sem hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson sagði, það getur verið vandasamt að draga þessa línu. Við reynum það með þessari nálgun. Við veltum fyrir okkur ýmsum hlutum í þessu sambandi en það var mat mitt að alls staðar rækist maður á vegg sem ekki væri hægt að komast hjá nema að fara þá leið sem hér er talað um.

Ég nefndi það líka áðan, af því að hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson spurði um afstöðuna til atvinnugreinarinnar, að ég tel að stjórnvöld hafi með margvíslegum hætti reynt að koma til móts við atvinnugreinina, m.a. með hinum ívilnandi reglum varðandi réttindi þeirra sem stýra þessum bátum. Við höfum reynt að bregðast þannig við af því að lögin væru ekki skýr að túlka þau frekar í hag þessum nýja vaxtarbroddi. Ég nefndi áðan með byggðakvótann, að það væru út af fyrir sig engin brot á jafnræðisreglu þótt menn í einstökum byggðarlögum nýttu byggðakvótann sinn. Mér finnst það einmitt þvert á móti vera í anda byggðakvótahugsunarinnar að búa til nýja atvinnustarfsemi ef menn kjósa að nota hluta af byggðakvótanum í það. Mér finnst það ekkert athugunarvert nema síður sé. Mér finnst þetta vera að mörgu leyti spennandi og þetta gæti orðið hluti af þeirri nýliðun og öllu því sem við höfum oft talað um að þurfi að fara út í.

Hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson ræddi ýmsa möguleika á því hvernig hægt væri að fara með aflann. Það er alveg rétt að það eru ýmsir möguleikar í þessu sem ég held að hann gæti komið með hugmyndir um, en ég held fyrst og fremst að það fólk sem mun starfa í atvinnugreininni muni reyna að finna leið til að hámarka tekjur sínar. Reynslan er sú, miðað við upplýsingar mínar, að í stað þess að menn geri að afla sínum sjálfir með því að flaka hann blóðga þeir hann bara, komi þeir með hann að landi, hann er síðan ísaður og seldur í fiskvinnslustöðvar sem sjá um að flaka hann og vinna. Þannig verður nýtingin best. Þeir sem koma hingað til að veiða kunna ekki allir að flaka almennilega. Reynslan frá Noregi er t.d. sú að umgengnin um fiskinn hefur oft og tíðum verið alveg hörmuleg, nýtingin mjög léleg og afurðirnar slakar, en með því að selja hann í fiskvinnsluhúsin er einfaldlega tryggt að meðferðin á aflanum verði miklu betri. Þetta er að þróast í þá átt.

Auðvitað er það rétt sem ýmsir hv. þingmenn hafa bent á að ef það á að stjórna þessu gætu komið til aðrar leiðir. Menn gætu verið með hugmyndir um að setja hámark á stöng, hámark á mann, hámark á dag eða hámark á bát. Þetta er allt saman til, en mun allt saman leiða til þess með einhverjum hætti að takmarka magnið. Þessi leið er hér valin til að það sé í hendi hvers og eins hvað hann fiskar og leyfa mönnum sem eru kannski áhugasamir og kappsamir að fiska, fiska þá meira og gefa þessum fyrirtækjum sem eru sprotafyrirtæki, ný fyrirtæki sem þurfa á því að halda að fá auknar tekjur, möguleika á að auka tekjur sínar með því að selja aflann.

Þá er þetta orðinn atvinnuvegur en ekki tómstundaveiði. Það finnst mér vera stóra málið í þessu. Við erum að tala um starfsemi sem er ekki tómstundastarfsemi, sem er ekki fólgin í því að hv. 10. þm. Suðurk. fari út á Faxaflóa og veiði einn og sér eða með vinum sínum, hvort sem þeir borga saman olíuna eða ekki. Ég held að það sé frekar þannig að vilji hv. þingmaður auka þennan atvinnurekstur eigum við sem setjum lögin fremur að auðvelda honum það þannig að hann geti þá selt fiskinn, komið honum í verð og búið sér þannig til verðmæti sem ég veit að hann er náttúrlega manna færastur í, menntaður fiskvinnslumaður og kann allar aðferðir í þeim efnum.

Virðulegi forseti. Ég vildi ekki fara að blanda mér í almennar umræður um sjávarútvegsmál af þessu tilefni nú, ég vildi aðeins fara yfir þær spurningar og meginálitaefni sem mér fannst koma fram. Kjarni málsins er einfaldlega sá að hér er að verða til ný atvinnugrein sem við viljum að eflist og við viljum búa til tækifæri fyrir hana til að búa sér til meiri tekjur. Þess vegna viðurkennum við að þetta er atvinnugrein, þetta eru ekki tómstundir og þess vegna viljum við búa í hendur henni öll þau tæki sem hún þarf til þess.