stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Í dag hef ég setið undir gagnrýni um að ég væri að leggja stein í götu þessarar atvinnugreinar en nú sýnist mér hv. þingmaður vera búinn að finna út úr því að það sem fyrir mér vaki sé kannski frekar hitt að búa til sérreglur fyrir þennan atvinnuveg sem séu miklu rýmri en fyrir annan atvinnurekstur sem stundar fiskveiðar.
Það vakir ekki fyrir mér að opna hér aðrar leiðir en þær sem við höfum verið að horfa á. Þetta er atvinnurekstur sem byggir á því að menn fara út með rúllu og sjóstöng, eða hvort heldur er, og veiða. Þeir koma með aflann að landi og geta selt hann. Þeir eru síðan háðir ákveðnum reglum sem ég fór yfir áðan. Það er hins vegar ljóst að þeir eru líka undanþegnir ákveðnum reglum eins og ég nefndi varðandi skráningu áhafna o.s.frv. Það er gert vitandi vits vegna þess að það er ein forsendan fyrir því að hægt sé að stunda þennan atvinnurekstur.
Ég er hvorki að leggja stein í götu þessarar atvinnugreinar né að umbuna henni með óeðlilegum hætti eins og hv. þingmaður ýjaði að að gæti falist í lögunum. Þurfi að skýra þetta eitthvað betur (Forseti hringir.) gera menn það í meðförum þingsins.