stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Byggðastofnun hefur ekki haft mjög mikla aðkomu að þessu. Hún hefur verið til ráðuneytis, eða samráðs eins og ég held að það sé orðað í gildandi lögum, en í raun og veru hefur þessi úthlutun að langmestu leyti verið á hendi sjávarútvegsráðuneytisins. Það er að vísu þannig að í gildandi lögum hafði verið hluti af þeim byggðakvótum sem var úthlutað í gegnum Byggðastofnun. Þeir voru smám saman að deyja út og eins og fram kemur í frumvarpinu er gert ráð fyrir að það verði ákveðið sólarlagsákvæði þannig að í rauninni er aðeins verið að framlengja þann pott sem Byggðastofnun hefur haft til umráða. En aðkoma Byggðastofnunar er fyrst og fremst hugsuð þannig að hún hafi aðild að þessari úrskurðarnefnd. Að öðru leyti byggist úthlutun til einstakra byggðarlaga á gagnsæjum efnislegum reglum sem verða auðvitað kynntar og er sjálfsagður hlutur að séu uppi á yfirborðinu.
Varðandi byggðakvótann sjálfan þá er hann um 3.000 tonn af þorski, 1.700 tonn af ýsu og 1.300 tonn af ufsa og eitthvað lítilræði af steinbít sem (Forseti hringir.) koma sérstaklega í byggðakvótann einan og sér og þá er ég ekki að tala um jöfnunarbætur vegna rækju og skeljar.