133. löggjafarþing — 64. fundur,  1. feb. 2007.

aukin þjónusta við ungbarnafjölskyldur.

73. mál
[18:21]
Hlusta

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég leyfi mér að flytja hér tillögu til þingsályktunar um aukna þjónustu við ungbarnafjölskyldur, á þskj. 73. Þær tillögur flyt ég ásamt hv. þingmönnum Ástu R. Jóhannesdóttur, Guðrúnu Ögmundsdóttur og Valdimari L. Friðrikssyni.

Ég held að það sé alveg ljóst að brýnasta hagsmunamál ungbarnafjölskyldna er að ríki og sveitarfélög vinni að frekari framþróun á uppbyggingu dagvistarúrræða á vegum sveitarfélaga annars vegar og lengra fæðingarorlofi hins vegar. Út á það gengur tillagan.

Tillögugreinin orðast svo, með leyfi forseta:

,,Alþingi ályktar að fela félagsmálaráðherra í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga að láta kanna hvernig auka megi þjónustu við ungbarnafjölskyldur frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til barn kemst á leikskóla. Sérstaklega verði kannaður kostnaður við að lengja fæðingarorlof í áföngum um sex mánuði og að börn komist á leikskóla við 15 mánaða aldur. Skýrsla með kostnaðaráætlun og tillögur um framkvæmd verkefnis verði lögð fyrir Alþingi á haustþingi 2007.“

Skoðun okkar flutningsmanna er að það sé afar mikilvægt að bæði ríki og sveitarfélög taki sameiginlega upp samvinnu um markmið og leiðir til þess að náð verði heildarsýn og samfellu í þjónustu við ungbarnafjölskyldur þar sem stefnt verði að því í áföngum að brúa það bil sem myndast hefur frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til börn komast á leikskóla.

Staðan nú er sú að margir foreldrar eiga í miklum vandræðum með að brúa bilið fyrir dagvistun barna sinna þegar þeir fara aftur á vinnumarkað að loknu fæðingarorlofi, en fæðingarorlof er nú samtals níu mánuðir hjá hjónum og sambýlisfólki en sex mánuðir hjá einstæðum foreldrum. Í stærstu sveitarfélögunum er algengast að börn fái pláss á leikskóla 18 mánaða gömul, þannig að þarna þarf að brúa níu mánaða bil hjá hjónum og sambýlisfólki og 12 mánaða bil hjá einstæðum foreldrum. Það er alveg ljóst að þjónusta dagmæðra við þennan aldurshóp og niðurgreiðsla sveitarfélaga á greiðslum foreldra til dagmæðra hefur vissulega veitt foreldrum ómetanlega aðstoð. Engu að síður er það mat flutningsmanna að huga eigi að framtíðarskipulagi þessara mála, sem felast ætti í samvinnu ríkis og sveitarfélaga til að koma til móts við þarfir ungbarnafjölskyldna á tímabilinu sem ég nefndi. Það tekur til þess að ríkið skoði í fyrsta lagi að lengja fæðingarorlof í áföngum um sex mánuði, þannig að það verði samtals 15 mánuðir, og í öðru lagi að börn komist fyrr á leikskóla, ekki við 18 mánaða aldur heldur við 15 mánaða aldur, þ.e. þegar fæðingarorlofi lyki.

Ég held að allir geti tekið undir það að með fæðingarorlofslögunum var stigið stórt skref í málefnum fjölskyldunnar og til að auka jafnrétti milli kynjanna. Jafnvel þótt heimilt sé að veita launalaust leyfi ef foreldrar kjósa að vera lengur með nýfæddu barni sínu en fæðingarorlofslög leyfa, þá hafa fæstir foreldrar efni á því að hverfa af vinnumarkaði strax þegar fæðingarorlofi lýkur. Í lögunum er ekki gert ráð fyrir að foreldraorlofi fylgi réttur til greiðslu launa úr Fæðingarorlofssjóði né að gert sé ráð fyrir að starfsmaður haldi launum meðan á foreldraorlofi stendur. Mér er ekki kunnugt um að það hafi verið kannað kerfisbundið hve mikið þessi heimild er nýtt en allt bendir til þess að um tiltölulega fá tilfelli sé að ræða, þar sem heimildinni fylgja ekki greiðslur af neinu tagi.

Mig langar, virðulegi forseti, að fara nokkrum orðum um fæðingarorlofslögin. Eins góð og þau voru í upphafi þegar þau voru sett er staðreyndin sú að ríkisstjórnarflokkarnir hafa farið út í lagabreytingar á fæðingarorlofslögunum sem allar hafa verið skref aftur á bak í þeirri framsýni sem var þó í löggjöfinni. Margir foreldrar hafa lent í þeim gildrum sem eru í lagaákvæðinu í fæðingarorlofslögunum. Það er staðreynd að fæðingarorlof er ekki núna 80% af launum eins og kveðið er á um í lögunum vegna þess að viðmiðunartímabilinu var breytt af hálfu ríkisstjórnarinnar, þannig að í stað þess að miða við 12 síðustu mánuði fyrir töku fæðingarorlofs er talað um, að mig minnir, að það sé tveggja ára tímabil sem á að leggja til grundvallar fæðingarorlofi. Þetta hefur orðið til þess að fæðingarorlofsgreiðslurnar eru komnar niður í 72–74% af launum en ekki 80%.

Þetta höfum við farið yfir í þinginu. Þetta bentum við þingmenn Samfylkingarinnar og stjórnarandstöðunnar á þegar ríkisstjórnin knúði í gegn þessa breytingu til þess að spara peninga sem færu í fæðingarorlof. Ég er sannfærð um það að eftir því sem tímar líða, ef þessu verður ekki breytt, og ég býst við að það sé þegar farið að eiga sér stað í framkvæmd, að karlar muni í minna mæli en áður taka fæðingarorlof, ef þetta verður raunin að með viðmiðunartímabilinu séum við komin niður í kannski 72–74% af launum sem fólk fær greitt sem fer í fæðingarorlof. Það hlýtur að vera fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar sem tekur við að loknum kosningum að breyta þessu fyrirkomulagi í fæðingarorlofslögunum.

Fleiri gallar eru að koma í ljós á fæðingarorlofslögunum eins og nýlegur dómur umboðsmanns Alþingis kvað á um, en það var kvartað til hans að til grundvallar að fá greiðslur úr sjóðnum verði foreldrar að sýna fram á tveggja ára tekjur. Kvartað var til umboðsmanns yfir því að í framkvæmd væru lögin þannig ef að stutt bil væri á milli fæðingu barna í sömu fjölskyldu væru greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði lagðar til grundvallar þannig að vegna síðari barns tækju greiðslur einungis mið af 80% af 80% fæðingarorlofi úr Fæðingarorlofssjóðnum.

Þetta er auðvitað alveg fráleitt, virðulegi forseti. Umboðsmaður Alþingis telur að þarna séu lög brotin og er málið nú til meðferðar hjá félagsmálaráðherra og sennilega er úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofs að skoða það. Þetta er eitt af því sem verður að breyta og svona lagfæring verður að mínu viti að fara í gegn áður en þingið fer heim í vor.

Fleiri gallar hafa komið fram á fæðingarorlofslögunum eins og það að umönnunarbætur samrýmdust ekki fæðingarorlofslögunum. Eftir að sú sem hér stendur og fleiri hafa hamrað á því aftur og aftur úr þessum ræðustól að þetta væri óréttlæti, þetta væru samrýmanlegar greiðslur vegna þess að umönnunargreiðslur væru allt öðruvísi hugsaðar en fæðingarorlofsgreiðslur féllst félagsmálaráðherra loks á það með okkur að þetta væri óréttlátt og hefur nú verið leiðrétt á þessu þingi.

Fleira má nefna í sambandi við fæðingarorlofslögin sem þarf að skoða. Það er t.d. mjög mikið óréttlæti í því að orlofsréttur fólks sem tekur fæðingarorlof skerðist þann tíma sem fólk er í fæðingarorlofi. Þá fær það ekki greitt orlof. Annað er uppi á teningnum hjá opinberum starfsmönnum sem fá orlof greitt. Það er algjörlega óskert þrátt fyrir töku á fæðingarorlofi. Þetta höfum við margbent á úr þessum ræðustóli en hefur ekki náð fram að ganga. Ég held að ástæða sé til þess að halda þessu til haga þegar við ræðum hér hugmynd sem sett er fram í tillögu til þingsályktunar um að farið verði að huga að því að lengja fæðingarorlofið í 15 mánuði.

Ég vil svo í lokin, virðulegi forseti, áður en ég lýk máli mínu benda á það sem við ræddum raunverulega fyrr á þessu þingi þegar við fjölluðum um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt þar sem lagt var til af hálfu ríkisstjórnarinnar að heimgreiðslur svokallaðar væru skattfrjálsar. En með heimgreiðslum er verið að greiða fólki sem kýs að vera heima jafnvel þó það eigi kost á leikskólaplássi eða dagmæðragæslu, þá er verið að greiða þeim greiðslur sem var ákveðið af hálfu stjórnarflokkanna að yrðu skattfrjálsar og nokkur sveitarfélög hafa tekið upp. Um er að ræða mjög lágar greiðslur, eða um 30 þús. kr. á mánuði, og svona lágar greiðslur eru auðvitað ekki til þess fallnar að foreldrar geti verið lengur heima með börnum sínum. Við bentum á það að hér væri um að ræða stefnubreytingu á sviði jafnréttismála og þetta gæti leitt til þess að allri framþróun á fæðingarorlofslöggjöfinni mundi seinka. Það er ástæða til þess að halda því til haga að það er ástæða til þess að hafa af þessu verulegar áhyggjur.

Virðulegi forseti. Mikilvægt er að bæði ríki og sveitarfélög fari sameiginlega yfir þá kosti sem fyrir hendi eru í málinu og meti kostnaðaráhrif þeirra og kannski fleiri sem upp á borðið kæmu um það hvernig auka megi þjónustu við ungbarnafjölskyldur og brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og leikskólavist tekur við. Bent er á tvær leiðir í því sambandi en fleiri gætu samhliða komið til greina, eins og að styrkja og efla dagmæðrakerfið. Auk þess að huga að lengra fæðingarorlofi er brýnt að skoða þá annmarka sem upp hafa komið á núverandi fæðingarorlofslögum en um það hafa þingmenn Samfylkingarinnar flutt sérstakt þingmál.

Sumir af þeim annmörkum og göllum sem hafa komið fram á fæðingarorlofslöggjöfinni þola enga bið og verður að leiðrétta á þessu þingi, eins og það lögbrot sem umboðsmaður Alþingis hefur bent á, að þegar stutt er á milli barneigna séu fæðingarorlofsgreiðslurnar sem eru ekki nema 80% og reyndar einungis 72–74%, eins og ég ræddi um áðan, af tekjum lagðar til grundvallar. Það er auðvitað ófært og ég hvet til þess að því verði breytt áður en þing fer heim.

Ég vona að tillagan fái góða umfjöllun í þeirri nefnd sem fær hana til meðferðar. Ég tel rétt að vísa tillögunni til félagsmálanefndar og leyfi mér að gera það hér með, virðulegi forseti, að vísa henni til síðari umr. og hv. félagsmálanefndar.