133. löggjafarþing — 64. fundur,  1. feb. 2007.

heildararðsemi stóriðju- og stórvirkjanaframkvæmda fyrir þjóðarbúið.

19. mál
[18:58]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hv. þingmaður vill skoða dæmið aftur í tímann og fara yfir söguna í heild. Á hverjum tíma, sama hvenær það er, sem við byggjum virkjanir eða gerum eitthvað stórt er alltaf sama aldan á móti. Vinstri öfl í samfélaginu hafa alltaf verið á móti stórframkvæmdum. Ég man vel umræðuna um Búrfell og Straumsvík. Þá var bara verið að fórna öllu, landi, þjóð, fjárhag og sjálfstæði. Það er hægt að finna þetta, þetta er allt til.

Það sem ég vildi hins vegar spyrja hv. þingmann um eru þessi afleiddu störf, hátækniiðnaðinn sem hefur orðið til, öll sú menntun og verkfræðiþekking sem hefur orðið til í landinu og er í útrás núna, einmitt vegna þess að við höfum byggt upp virkjanir og stóriðju. Það er þáttur sem við verðum að gefa gaum, að fjölmörg störf sem krefjast mikillar menntunar, hálaunastörf sem hafa orðið til í samfélaginu vegna þess arna. Þess vegna eru m.a. þeir sem eru í forsvari fyrir áltæknigarð í Þorlákshöfn að leita leiða við úrvinnslu þannig að við séum ekki bara í hráefnisframleiðslu fyrir önnur iðnríki hvað þennan málm varðar heldur í úrvinnslu til að ná meiri verðmætasköpun inn í landið, meiri hátækni og hærri launum. Það er það sem stefnt er að með þeirri starfsemi.