umferðarlög.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þingmenn Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Jóhann Ársælsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Jón Gunnarsson og Katrín Júlíusdóttir.
Frumvarpið gengur út á það að setja skýrt í lög heimild til þess að sekta ófatlaða einstaklinga sem leggja í bílastæði sérmerkt fötluðum. Frumvarpið er í fjórum greinum.
Í 1. gr. segir, með leyfi forseta:
„Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 28. gr. laganna:
a. Orðin „eða bifreiðir fatlaðra, og“ í h-lið falla brott.
b. Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: á merktu stæði fyrir bifreiðir fatlaðra.“
Síðan koma breytingar, tilfærslur á liðum sem nauðsynlegt er að gera og í 4. gr. segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Ég flutti frumvarpið áður á 132. löggjafarþingi en þá náði það ekki afgreiðslu.
Bifreiðastæði merkt fötluðum eru þeim einstaklingum afar mikilvæg til að geta verið virkir þátttakendur í samfélaginu og verið sjálfbjarga í daglegu lífi. Reglugerð nr. 369/2000, um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða, með síðari breytingum, tekur mið af sambærilegum reglum hjá EES-löndunum. Hér á landi er verulega ábótavant að reglur um nefnd stæði fatlaðra séu virtar af ökumönnum og oft lagt í þessi stæði þó P-stæðiskort hreyfihamlaðra sé ekki til staðar í bifreið. Það er því rík ástæða til að skapa úrræði í umferðarlögum sem hvetja til þess að nefnd stæði komi réttum einstaklingum að gagni. Með frumvarpi þessu er lagt til að gerð verði breyting á 108. gr. umferðarlaga og kveðið á um að leggja megi á gjald ef bifreið er lagt í stæði sem er merkt fötluðum, þ.e. að sekta megi þá ófötluðu einstaklinga sem misnota bifreiðastæði sem eru sérmerkt fötluðum.
Í 2. mgr. 100. gr. laganna kemur fram að ekki skuli refsað fyrir þau brot sem greint er frá í 108. gr. nema stöðvun og lagning ökutækis hafi haft í för með sér hættu fyrir aðra eða að óþörfu valdið óþægindum í umferðinni. Lagt er til að þessu verði breytt þannig að refsað verði fyrir brot sem tilgreind eru í 1. mgr. 108. gr. nema þau sem kveðið er á um í a-lið ákvæðisins, þ.e. þegar lagt er í stæði sem ekki eru sérstaklega merkt á þann hátt eða þegar lagt er á gangstétt.
Herra forseti. Miðað við mikinn fjölda svokallaðra P-stæðiskorta fyrir fatlaða sem eru gefin út er um nokkur hundruð einstaklinga að ræða sem þurfa og hafa fullan rétt á að nýta sér þessi sérmerktu bílastæði. Þau bílastæði eru mjög mikilvægur þáttur í að bæta möguleika hreyfihamlaðs fólks til þátttöku í samfélaginu og að skapa þeim jöfn tækifæri. Að mínu mati ber okkur skylda til þess á hinu háa Alþingi að leggja okkar af mörkum til að vernda þennan rétt þeirra til að hafa þau stæði fyrir sig og setja til þess skýr ákvæði í lögum.
Það er því miður þannig í okkar þjóðfélagi og eflaust víðar, að ófatlaðir einstaklingar misnota oft þessi stæði. Þess vegna legg ég það til og líka af því að það gætir víða misskilnings í þjóðfélaginu að það sé sektarákvæði til í lögum, en það er það því miður ekki. Að mínu mati er því nauðsynlegt að hafa sektarákvæði og lögreglan metur síðan hversu há sektin skuli vera. Ég er að tala um í dag nokkra tugi þúsunda, 30–40 þús., ef ófatlaður einstaklingur leggur í sérmerkt bílastæði. Það ætti alla vega að verða til þess að viðkomandi geri það ekki aftur. Sektin er því ekki hugsuð sem tekjur í ríkiskassann heldur fyrst og fremst sem fælingarmáttur til að reyna að tryggja það að fatlaðir hafi þann aðgang að sérmerktu bílastæðunum sem þeim ber.
Þegar maður ræðir við þá einstaklinga sem hafa yfir að ráða hinum svokölluðu P-stæðiskortum þá kvarta þeir gjarnan undan því að á ákveðnum álagstímum í þjóðfélaginu, t.d. seinni partinn á föstudögum, laugardögum og nálægt hátíðum sé mjög algengt að ófatlaðir misnoti þessi bílastæði við verslanir og jafnframt á virkum dögum við þjónustustofnanir, en gera sér ekki grein fyrir því að í leiðinni eru þeir að takmarka aðgang fatlaðra að þeim verslunum, fyrirtækjum og stofnunum, því það getur skipt miklu máli að fatlaður einstaklingur þurfi ekki að ganga við hækjur eða keyra í hjólastól langar vegalengdir til að komast á ákveðinn stað. Það er einmitt grunnástæðan fyrir því að þessi stæði eru yfirleitt á besta stað, til þess að auðvelda viðkomandi einstaklingi að fara og nýta sér þá þjónustu sem hann á jafnan rétt á og allir aðrir. Það er því miður brotalöm í þjóðfélagi okkar og það er ástæðan fyrir því að ég kem fram með frumvarp til laga til að breyta, til þess að heimila lögreglu alveg skýrt að sekta ófatlaða einstaklinga sem leggja í bílastæði sérmerkt fötluðum.
Það er kannski rétt að nefna það líka í leiðinni að það er væntanlegt frumvarp til laga um mannvirki og skipulagslög. Ég tel að þar beri okkur skylda til að setja skýrari ákvæði en nú eru um aðgengi allra að mannvirkjum, byggingum, umhverfi o.s.frv. Þetta miðar allt að því að skapa hreyfihömluðum raunveruleg tækifæri til að komast um í samfélaginu, t.d. vegna sjálfstæðrar búsetu, menntunar og atvinnu. Þeir eiga að sjálfsögðu að eiga jafna möguleika og allir aðrir þjóðfélagsþegnar. Því er afar mikilvægt að aðgengi sé eins og best verður á kosið annars vegar og hins vegar að þeir geti haft í friði hin svokölluðu sérmerktu bláu bílastæði sem eru eingöngu ætluð fötluðum og þeim sem hafa í bifreiðinni sérstakt P-stæðiskort.
Herra forseti. Ég vona að frumvarpið fái skjóta afgreiðslu og geti orðið að lögum strax í vor.