fyrirspurnir til ráðherra.
Hæstv. forseti. Ég vil gera mjög alvarlegar athugasemdir við fundarstjórn forseta, ekki bara það að engin fyrirspurn skuli hafa verið heimiluð frá þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs heldur fyrst og fremst á hvaða forsendum það gerist.
Fyrsta fyrirspurnin sem hæstv. forseti leyfir varðar loftslagsbreytingar, nýútkomna skýrslu um það efni og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við henni. Fyrir liggur beiðni um utandagskrárumræðu um nákvæmlega þetta efni og á fundi með þessum sama hæstv. forseta þingsins var um hana fjallað. Engu að síður er þessi fyrirspurn leyfð fyrst og verður það á kostnað okkar í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði sem eigum sitthvað vantalað við hæstv. samgönguráðherra Sturlu Böðvarsson sem ég tel að sé að fara á bak við þingið varðandi vegaframkvæmdir á hálendinu. Það er mál sem kallar á umræðu í þinginu en ég vildi fyrst og fremst, hæstv. forseti, gera athugasemdir við þessa fundarstjórn.