fyrirspurnir til ráðherra.
Frú forseti. Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson hefur málfrelsi eins og aðrir. Það getur vel verið að hv. þm. Arnbjörgu Sveinsdóttur finnist að ekki eigi að kalla framgöngu þess þingmanns leikrit hérna áðan en ég held að ég og formaður þingflokks sjálfstæðismanna getum þó verið sammála um að hann lék þetta mjög vel.
Frú forseti. Ég kem hér upp vegna þess að hv. þingmaður spurði — eftir að hafa leikið til enda hlutverk sitt — svo sem út í tómið: Hvað segja nú hv. þingmenn Jóhanna Sigurðardóttir og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar? Frú forseti. Við eigum ekki kost á því að svara þeirri spurningu í umræðu sem er lokuð með þessum hætti.
Fyrst að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hins vegar óskað eftir því að fá fram afstöðu Samfylkingarinnar til tekjuskiptingar og tekjudreifingar á Íslandi vil ég verða við þeim óskum hv. þingmanns sem talaði fyrir Sjálfstæðisflokkinn (Gripið fram í.) og lýsa því yfir að ég óska eftir að þessi mál verði tekin til umræðu utan dagskrár svo fljótt sem auðið verður.
Síðan vil ég líka upplýsa hv. þingmann, sem virtist vera að fetta fingur út í að þingmenn Samfylkingarinnar væru að ræða um loftslagsmál, að formaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram tvö þingmál sem beinlínis varða losun þeirra skaðlegu lofttegunda. Það er því fullkomlega eðlilegt að hún fyrir hönd síns flokks, sem hefur haft frumkvæði um tillöguflutning á vissum sviðum þess málaflokks í þinginu, inni forsætisráðherra eftir því vegna þess að hann hefur til þessa, eins og hv. þingmaður og allur flokkur hans, skilað auðu í loftslagsmálum. Það er því fullkomlega eðlilegt að með þessu móti sé ákveðin verkaskipting með stjórnarandstöðunni ef maður vill líta á það þannig, að Samfylkingin gangi eftir því að sá flokkur sem hefur þagað þunnu hljóði svari.
Svo vona ég að hv. þingmaður taki með mér þátt í umræðu við hæstv. umhverfisráðherra um viðhorf Framsóknarflokksins til þess máls. Ég veit að þar mun hann líka sýna jafnfrábæran leik og áðan.