fyrirspurnir til ráðherra.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem það gerist að stjórnarandstaðan rýkur upp til handa og fóta þegar stjórnarliðar spyrja ríkisstjórnina eða ráðherra hennar einhverra spurninga undir þessum dagskrárlið. Ég man varla nokkurn tíma eftir því raunar á þessu kjörtímabili að það hafi ekki einmitt gerst, að þegar stjórnarliðar koma hér upp, spyrja eðlilegra spurninga, að stjórnarandstaðan kveðji sér ekki hljóðs eftir að umræðu lýkur til að gagnrýna það stjórnarliðar skuli leyfa sér að tala undir þessum dagskrárlið.
Ég hef marglesið þingsköpin og ég hef hvergi komið auga á að þessi dagskrárliður sé sérstaklega hannaður til þess að stjórnarandstaðan ein fái að einoka hann og koma í veg fyrir að stjórnarliðar tali.
Hv. þm. Mörður Árnason talaði áðan og sagði að það væri nú að vísu svo að hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson hefði hér málfrelsi og við það yrði að una, að við það yrði að una að þingmaðurinn hefði málfrelsi. Það er nú bara þannig að það er stjórnarskrárvarinn réttur, það er ekki þannig að menn eigi sérstaklega við þetta að una.
Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson vakti athygli á máli sem var afskaplega athyglisvert. Síðan gerðist það í kjölfarið að hv. þm. Ögmundur Jónasson fann að því að formaður Samfylkingarinnar hefði verið að reyna að stelast inn í mál sem þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefðu flutt. Og þetta var auðvitað orðið svolítið vandræðalegt og þá var rokið upp til þess að setja af stað leikrit af hálfu hv. þm. Marðar Árnasonar til að draga athygli frá því að Vinstri grænir væru að gagnrýna formann Samfylkingarinnar og Samfylkinguna fyrir það að reyna að flýta sér fram fyrir röðina í umræðum um mál sem er vissulega eðlilegt mál, sem eru loftslagsbreytingarnar.
Málið er einfaldlega þetta: Það er eðlilegt, það er stjórnarskrárvarinn réttur þingmanna, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, að kveðja sér hljóðs á Alþingi. Í þingsköpum er kveðið á um að þingmenn hafi rétt til þess að spyrja spurninga og ekki er verið sérstaklega að tala um í því sambandi að það sé stjórnarandstaðan eingöngu. Það eru ekki síður stjórnarliðar sem hafa fullkominn rétt til þess að vekja athygli á máli.
Reyndar er mjög sérkennilegt að það skuli ekki hafa verið stjórnarandstaðan sem vekti athygli á því þegar birtast athyglisverðar upplýsingar sem styðjast við aðferðafræði Evrópusambandsins um hvernig eigi að bera saman tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Það er kannski til marks um að sumir eru á flótta frá þessu Evrópusambandsdekri sínu.