úttekt á upptökuheimilum.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál upp á Alþingi. Í gær urðum við vitni að átakanlegum viðtölum í Kastljóssþætti um vistheimilið í Breiðavík sem starfrækt var af hálfu opinberra aðila frá vorinu 1952 og langt fram á 8. áratug síðustu aldar.
Ríkisstjórnin fjallaði um málið á fundi sínum í morgun og þar var samhljómur um að mikilvægt væri að rannsaka þau gögn og upplýsingar sem fyrir liggja um starfsemina í Breiðavík. Við verðum að skoða þessi mál í samhengi við aðra starfsemi á þessum tíma og fara yfir það hvað við getum lært af því sem þarna gerðist. Það er mikilvægt, virðulegi forseti.
Sá vitnisburður og samhljómur sem nú hefur komið fram um starfshætti vistheimilisins er nýr af nálinni. Hann ber að taka mjög alvarlega og krefst þess að mínu mati að farið sé mjög ítarlega yfir málið áður en teknar eru endanlegar ákvarðanir um næstu skref. Ég tel m.a. rétt að líta til þess hvernig stjórnvöld í öðrum löndum hafa nálgast hliðstæð mál og í félagsmálaráðuneytinu er nú þegar verið að fara yfir þau mál. Ég legg áherslu á að stjórnvöld axli fulla ábyrgð og rannsaki málið til hlítar og að því er nú þegar unnið innan Stjórnarráðsins. Vitneskja um starfsemina hefur vissulega legið fyrir lengi, m.a. í kjölfar rannsóknar Gísla H. Guðjónssonar réttarsálfræðings sem unnin var árið 1975. Þar koma fram alvarlegar upplýsingar og eins er vitnað til þeirra í handriti að sögu barnaverndar á Íslandi sem nú er unnið að.
Ég fullyrði það að við munum vinna hratt og örugglega að því að þetta mál verði sett í vandaðan farveg. Nauðsynlegt er að upplýsa málið vegna þeirra sem kunna að hafa sætt ómannúðlegri meðferð á stofnunum ríkisins og jafnframt vegna þeirra sem störfuðu í þágu ríkisins en hafa ekkert til sakar unnið. Ég legg áherslu á það í þessari umræðu, virðulegi forseti.