skyldur erlendra fyrirtækja og starfskjör starfsmanna þeirra.
Hæstv. forseti. Það er náttúrlega erfitt að átta sig á því hvað hefði gerst ef. (GAK: Ég er að tala um það.) Já, en mín skoðun er sú eða mín tilfinning er sú að hið sama hefði gerst, sama fólkið væri hér að störfum hvað sem gert hefði verið 1. maí. Hitt breyttist að eftirlitið með erlendu launafólki, og nú eftir samþykkt þessara laga með starfsfólki sem starfar hjá erlendum fyrirtækjum, er og verður sífellt betra og það er þetta sem ég held að skipti sköpum. Við bjuggum við það ófremdarástand að fólk var að koma hingað á vegum starfsmannaleigna og það gerist enn og er ekki í öllum tilvikum slæmt en í allt of mörgum tilvikum er það slæmt. Ég held að það sem meginmáli skipti sé aðkoma verkalýðshreyfingarinnar að samningum og eftirlit hennar, eftirlit Vinnumálastofnunar, skráning, samstaða í þjóðfélaginu um að sjá til þess að farið sé að kjarasamningum, lögum og reglum. Þetta skiptir meginmáli, en hvað varðar múrana og girðingarnar þá skulum við ekki gleyma því að við Íslendingar viljum geta komist annað til að leita starfa. Við viljum ákveðna gagnkvæmni þarna. Þess vegna er meginmálið að við fylgjum efnahagsstefnu sem er skynsamleg, sem er hyggileg, og að við spennum bogann ekki of hátt eins og við erum að gera núna með aðkomu allt of margs fólks á allt of skömmum tíma. Ég óttast að með þessari stefnu kunni að bresta einhverjir þættir í innviðum okkar ágæta velferðarsamfélags. Það er þetta sem ég óttast ef við sýnum ekki gát. Það eigum við tvímælalaust að gera.