bókmenntasjóður.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um bókmenntasjóð og fleira. Í þessu frumvarpi er lagt til að stofnaður verði bókmenntasjóður sem taki í raun við hlutverki þriggja sjóða, þ.e. Bókmenntakynningarsjóðs, Menningarsjóðs og þýðingarsjóðs. Síðan er einnig lagt til að fella það hlutverk sem Bókasafnssjóð höfunda gegnir í III. kafla laganna, sem heitir Greiðslur fyrir afnot af bókasöfnum. Ég ætla að gera grein fyrir, frú forseti, hlutverki þeirra þriggja sjóða sem ég nefndi í upphafi áður en ég fer í einstök efnisatriði og kafla frumvarpsins.
Menningarsjóður, síðar Bókaútgáfa menningarsjóðs, var settur á stofn með lögum um menningarsjóð og menntamálaráð, nr. 50/1957. Í 1. gr. laganna var hlutverki sjóðsins lýst þannig að honum væri ætlað að styðja við íslenska menningu með því að efla listir og vísindi. Lög um menningarsjóð og menntamálaráð voru síðan leyst af hólmi með gildandi lögum, með nýjum lögum um Menningarsjóð, nr. 79/1993. Hlutverk hans er að styrkja útgáfu vandaðra bókmenntaverka á íslenskri tungu, einkum fræðirit, handbækur, orðabækur og menningarsöguleg rit samanber 1. gr. þessara laga.
Þýðingarsjóður, sem stofnaður var með lögum nr. 35/1981, hefur verið nýttur til að styrkja þýðingu vandaðra erlendra bóka á íslensku og Bókmenntakynningarsjóður var stofnaður árið 1982. Hann gegnir því hlutverki að kynna íslenskar bókmenntir erlendis og greiða fyrir útgáfu með þýðingarstyrkjum og með þátttöku Íslands í erlendum menningarviðburðum og alþjóðlegum samskiptum á sviði bókmennta.
Bókmenntakynningarsjóður veitir einnig þýðendum íslenskra bókmennta ferðastyrki til að heimsækja Ísland og íslenskum rithöfundum ferðastyrki til að kynna verk sín erlendis. Bókasafnssjóður höfunda hefur greitt höfundum fyrir afnot af bókum þeirra á bókasöfnum. Lög um sjóðinn eru frá 1997 en rætur hans má rekja til Rithöfundasjóðs Íslands sem starfaði samkvæmt 11. gr. laga um almenningsbókasöfn, nr. 50/1976.
Nú gilda lög um Bókasafnssjóð höfunda frá árinu 1997. Úthlutað er til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa vegna notkunar bóka þeirra í bókasöfnum. Skilyrði úthlutunar eru að bækur hafi verið gefnar út á íslensku eða þýddar á íslensku samanber 3. gr. laganna. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fella hlutverk Bókasafnssjóðs höfunda undir lög um bókmenntasjóð og fleira eins og nánar er lýst í III. kafla frumvarpsins.
Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að það fé sem varið hefur verið samkvæmt fjárlögum til bókmennta úr nokkrum sjóðum og á vegum menntamálaráðuneytisins renni í bókmenntasjóð. Í fjárlögum 2007 eru bókmenntasjóði ætlaðar 37,3 millj. kr. en til viðbótar ætti fjárlagaliður 02-983-1.11, Styrkir til útgáfumála, 14 millj. kr., einnig að renna í bókmenntasjóðinn. Samkvæmt fjárlögum 2007 renna 24,6 millj. kr. til Bókasafnssjóðs höfunda.
Ég mun nú, frú forseti, gera nánari grein fyrir einstökum ákvæðum frumvarpsins.
I. kafli snertir markmið frumvarpsins og yfirstjórnina en þar segir, með leyfi forseta:
„Markmið laga þessara er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu og búa íslenskri bókmenningu hagstæð skilyrði.“
Síðan segir: „Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn málefna er varða bókmenntir samkvæmt lögum þessum.“ — Þetta er í samræmi við 7. tölul. 10. gr. reglugerðar um Stjórnarráð Íslands, nr. 3/2004, þar sem segir að menntamálaráðuneytið fari með mál er varða menningarstarfsemi hvers konar, stuðning við hana og kynningu innan lands og utan.
Í II. kafla frumvarpsins er fjallað um bókmenntasjóð en hlutverk bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og útgáfu bóka á íslenskri tungu eins og nánar kemur fram í 1. mgr. 2. gr. í stafliðum a–d. Bókmenntasjóði er ætlað að veita styrki til útgáfu frumsaminna íslenskra skáldverka auk fræðirita á íslensku eða erlendum málum svo fremi þau efli íslenska menningu. Bókmenntasjóður lánar útgefendum eða styrkir þá til útgáfu á vönduðum erlendum bókverkum á íslensku máli, jafnt skáldverka sem viðurkenndra fræðirita. Í c-lið er síðan fjallað um það hlutverk Bókmenntakynningarsjóðs að greiða fyrir aukinni kynningu og útgáfu á verkum íslenskra höfunda um allan heim. Í d-lið er skapað svigrúm til að stjórn bókmenntasjóðs geti sinnt ýmsum verkefnum sem upp kunna að koma og falla undir verksvið hennar.
Í 3. gr. laganna er fjallað um skipan stjórnar bókmenntasjóðs. Gerð er tillaga um fimm manna stjórn verði skipuð til þriggja ára í senn þannig að Rithöfundasamband Íslands tilnefni tvo fulltrúa í stjórnina. Þá er lagt til að Félag íslenskra bókaútgefenda tilnefni einn fulltrúa. Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna tilnefni einn fulltrúa í sjóðstjórn og ráðherra skipi formann án tilnefningar. Stjórn bókmenntasjóðs ákveður árlega skiptingu fjárveitinga sjóðsins á milli viðfangsefna samkvæmt stefnu sjóðsins sem mótuð er til þriggja ára í senn og úthlutar úr sjóðnum. Ráðherra kemur því ekki að einstökum úthlutunum og styrkveitingar verða ekki kærðar til ráðherra. Ráðherra hefur hins vegar áhrif með útgáfu reglugerða, með samþykki stefnu stjórnar og með vali á formanni sem er skipaður af ráðherra án tilnefningar. Gert er ráð fyrir því að ráðherra geti falið stjórn bókmenntasjóðs að semja við til þess bæran aðila um að reka t.d. skrifstofu til að annast umsýslu með verkefnum sjóðsins.
Í III. kafla er eins og ég gat um áðan rætt um greiðslu fyrir afnot af bókasöfnum, þ.e. til höfunda vegna notkunar bóka þeirra á bókasöfnum, annars vegar vegna útlána bókanna og hins vegar vegna afnota bóka á lestrarsölum bókasafna. Hér er lögð til sú breyting að réttur til úthlutunar sé bundinn við höfunda bóka sem eru ríkisborgarar eða búsettir í landi innan Evrópska efnahagssvæðisins en skilyrði gildandi laga um að bækur hafi verið gefnar út eða þýddar á íslensku falli brott. Breytingin er til komin vegna athugasemda frá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA en í ágúst 2006 kynnti ESA þá bráðabirgðaniðurstöðu stofnunarinnar að lögin um Bókasafnssjóð höfunda eins og þau eru núna væru andstæð 4. gr. EES-samningsins og 1. mgr. eða 5. gr. tilskipunar ráðsins um leiguútlánsrétt og önnur réttindi tengd höfundarrétti á sviði hugmyndaréttar. — Hér eftir ætla ég einfaldlega að nefna það tilskipunina. — Sú niðurstaða var rökstudd því að hvers konar óbein mismunun á grundvelli ríkisfangs innan EES-svæðisins sem leiddi til sömu niðurstöðu og bein mismunun fæli í sér brot gegn 4. gr. samningsins.
Í svari íslenskra stjórnvalda við framangreindu bréfi ESA frá október 2006 var ekki fallist á framangreinda ályktun en þar sem líta mætti svo á að núverandi fyrirkomulag kynni að fela í sér óbeina mismunun á grundvelli ríkisfangs mundu íslensk stjórnvöld huga að því að fella brott tungumálaskilyrði laga um Bókasafnssjóð höfunda. Sú breyting sem hér er lögð til hefur þegar verið kynnt ESA á fundi embættismanna í Brussel 9. janúar síðastliðinn og telur ESA að breytingin sé til þess fallin að leiðrétta framangreinda mismunun gagnvart erlendum EES-ríkisborgurum.
Í 2. mgr. 4. gr. eru taldir upp þeir sem rétt eiga til úthlutunar. Rétt til úthlutunar samkvæmt þessari grein eiga rithöfundar, þýðendur, myndhöfundar og tónskáld, auk annarra einstaklinga sem átt hafa þátt í ritun bóka, enda sé framlag þeirra skráð hjá Landskerfi bókasafna eða á annan sannanlegan hátt. Það er gert ráð fyrir óbreyttu fyrirkomulagi við umsóknir og skráningu hjá Landskerfi bókasafna sem verður nánar útfært í reglum settum á grundvelli 2. mgr. 5. gr. frumvarpsins.
Í tilefni af athugasemdum ESA er sú breyting lögð til að hlutur þýðenda erlendra bóka verði aukinn úr einum þriðja af fullri úthlutun í tvo þriðju, á móti einum þriðja til erlends EES-rithöfundar. Ástæða þykir til að taka fram að réttur til úthlutunar fyrir afnot verka á bókasöfnum er persónulegur réttur sem er aðeins bundinn við rétthafa sjálfan. Í því felst árétting á því markmiði 4. og 5. gr. frumvarpsins að afmarka fjárstuðning vegna notkunar verka á bókasöfnum við lifandi höfunda og nána afkomendur þeirra. Hafi rétthafi framselt höfundarétt að verki á hann enga kröfu á úthlutun vegna notkunar þess á bókasöfnum.
Í 3. mgr. er fjallað um úthlutun til erfingja rétthafa og er þar stuðst við sömu reglur og gilt hafa samkvæmt 4. gr. laga nr. 33/1997.
Í 5. gr. er lagt til að þriggja manna úthlutunarnefnd annist úthlutun vegna afnota verka á bókasöfnum. Einn er tilnefndur af Hagþenki og annar af Rithöfundasambandi Íslands auk hins þriðja, sem er formaður, sem menntamálaráðherra skipar án tilnefningar. Hér er um að ræða fækkun miðað við fimm manna stjórn sem annast úthlutun úr Bókasafnssjóði höfunda.
Gert er ráð fyrir því að ráðherra setji reglur um lágmarksúthlutun til rétthafa en hámark gildandi laga verði afnumið. Á verðlagi október 2006 er lágmarkið 1.496 kr. og hámarkið 452.924 kr. Ákvarðanir um úthlutun til rétthafa sæta ekki stjórnsýslukæru til æðra stjórnvalds og er sú tilhögun í samræmi við 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins. Hér er einnig lagt til að tekin verði upp heimild fyrir menntamálaráðherra til að fela úthlutunarnefnd að semja við þar til bæra aðila til að annast umsýslu á umsóknum og greiðslum samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar.
Frú forseti. Ég hef gert grein fyrir þessu frumvarpi, sem snertir bókmenntasjóð og fleira. Því er m.a. ætlað að gera regluverkið um bókmenntirnar skýrara, vonandi skilvirkara og markvissara en verið hefur. Við höfum rætt þetta við hlutaðeigandi aðila og átt ágætissamstarf við þá. Ljóst er að allir hafa metnað til að halda áfram að kynna enn frekar okkar góðu bókmenntir. Ég vona að fyrsta skrefið í þá átt verði að skipuleggja þetta regluverk. Til þess er þetta frumvarp fallið.
Ég legg til, frú forseti, að frumvarpinu verði vísað til hv. menntamálanefndar að lokinni 1. umr.