rammaáætlun um náttúruvernd.
Forseti. Ég veit að við erum ekki ósammála um þetta, ég og hv. ræðumaður. Til glöggvunar verður þó að taka fram að það er einmitt í rammaáætlun um náttúruvernd sem fram á að fara þetta mat á forsendum náttúruverndarinnar. Þess vegna hefur henni verið valið þetta nafn, rammaáætlun um náttúruvernd. Það lýsir ágætlega tilganginum en er auðvitað líka áminning um það að til eru aðrar rammaáætlanir og þar á meðal rammaáætlanir sem nú eru í gangi en þar eru aðeins þau landsvæði metin þar sem virkjun kemur til greina, jarðhitavirkjun eða vatnsaflsvirkjun, og önnur ekki tekin með.
Segja má að sú rammaáætlun fari um landið með sitt mat og meti það fyrst og fremst á forsendum þessara tilteknu framkvæmda og spyrji að því: Hvar mæla náttúruverndarrök á móti? Svo hefur verið komist að ýmsum ágætum niðurstöðum og það eru ákveðnir gallar á þeirri aðferðafræði sem við rekjum lítillega í plagginu, en við ætlum rammaáætluninni að fara öfugt að og spyrja: Hvaða náttúruverndarforsendur mæla með vernd á þessu svæði umfram verndina á öðru svæði? Það eru þær forsendur sem við þurfum að byggja á og hv. þingmaður talaði um. Þess vegna erum við væntanlega sammála, ég og hv. þingmaður, um gagnið af rammaáætluninni sem síðan byggist auðvitað á tilteknum rannsóknum sem okkur vantar enn þá töluvert í þó að ýmislegt sé komið, þar á meðal í vinnunni að rammaáætlun um orkustefnu.