vegagerð um Stórasand.
Hæstv. forseti. Það er alveg óhætt að taka undir með hv. þingmanni að gerbreyting hefur orðið á því hvernig Vegagerðin stendur að vegaframkvæmdum í landinu og yfirleitt held ég að hægt sé að segja að það sé til hreinnar fyrirmyndar hvernig að málum er staðið í dag. Vissulega var ástæða til að breyta um verklag í því en þar held ég að mönnum hafi tekist prýðilega upp.
Við stöndum frammi fyrir því að vegir landsins eru ófullnægjandi og við höfum ekki áttað okkur nógu fljótt á því að samgöngurnar hefðu þurft að þróast miklu hraðar en raun ber vitni. Ég segi svo af því að hv. þingmaður nefndi samgönguáætlunina, það leyniplagg sem við þingmenn höfum ekki fengið að sjá en eigum víst að fá að sjá núna og skoða, það er ágætt. Búið er að lofa okkur að ýmislegt sé í því plaggi og því kominn tími til að við getum farið að fjalla um það.
En það hefur verið mikil hörmungarsaga hjá hæstv. samgönguráðherra. Hann virðist hafa verið í algerum vandræðum með að koma samgönguáætluninni í gegnum þingflokka stjórnarflokkanna og einstaka þingmenn hljóta að bera einhverja ábyrgð á því hvernig á því stendur, eða að hæstv. ráðherra hafi komið með svona vont plagg í hendur stjórnarflokkanna að ekki hafi verið hægt að ná samkomulagi um það fram á þennan dag. Það ber auðvitað að harma, því það hefði þurft að hafa þetta plagg alveg frá því í haust í höndum þingmanna svo menn geti skoðað það vandlega því hér er á ferðinni alveg gríðarlega mikið hagsmunamál fyrir byggðir landsins, fyrir landsins íbúa alla.