133. löggjafarþing — 66. fundur, 6. feb. 2007.
vegagerð um Stórasand.
59. mál
Herra forseti. Það gætir nokkurs misskilnings hjá hv. þingmanni sennilega vegna þess að hann var að hraða sér í þinghúsið og heyrði ekki ræðu mína en ég hef mælt með leiðinni um Kjalveg og óska sérstaklega eftir að samgöngunefnd taki til athugunar hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu að greiðlega gangi að ráðast í framkvæmdir en ég óska ekki eftir því að tillagan um Stórasand verði samþykkt.