133. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2007.

málefni Frjálslynda flokksins.

[12:06]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Ég hef sjaldan orðið vitni að jafnómerkilegum málflutningi og hv. þm. Sæunn Stefánsdóttir gerði sig seka um. Þetta er alvörumál, hv. þingmaður Hjálmar Árnason. Það er alvörumál þegar fólk dylgjar á opinberum vettvangi, flytur dylgjurnar í Ríkisútvarpi, útvarpi allra landsmanna, færir engin rök fyrir orðum sínum og vitnar ekki í neitt þessum ásökunum til staðfestingar. Mér finnst það alvarlegt.

Hér kemur hv. þingmaður og segir að rætt hafi verið um sjúkdóma. Ég vil þá spyrja hv. þingmann hvort hún telji það vera staðfestingu á einhverju útlendingahatri hæstv. heilbrigðisráðherra að hafa sett reglugerð um það að fylgjast eigi með berklum þeirra sem koma til landsins. Telur hv. þingmaður það vera staðfestingu á einhverju útlendingahatri framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðisstofnunar að hann telji það verkefni sem eigi að fylgjast með? Ég efast um það, en þegar við í Frjálslynda flokknum förum í þessa umræðu og gerum það málefnalega æmta og skræmta framsóknarmenn og reyna að útmála þessa umræðu sem vonda. Það er vegna þess að þeir treysta sér ekki í hana. Þeir treysta sér ekki í þessa umræðu, hafa slæma samvisku og reyna þess vegna að slá hana út af borðinu með svo ómerkilegum málflutningi og dylgjum sem ég tel að verði hv. þm. Sæunni Stefánsdóttur til ævarandi skammar. Ég bjóst við því að hv. þingmaður mundi bara koma í ræðustól og biðjast afsökunar.