133. löggjafarþing — 68. fundur,  7. feb. 2007.

varnarsvæði á Miðnesheiði.

526. mál
[12:39]
Hlusta

Hjálmar Árnason (F):

Hæstv. forseti. Ég tel að sú leið sem valin var varðandi nýtingu varnarsvæðisins hafi verið sú rétta. Þá erum við að tala um þann hluta sem þróunarfélagið fékk, ekki um öryggissvæðið vegna flugumferðar. Ég teldi að það hefði verið lakari kostur ef sú vinna hefði verið sett yfir á eitthvert ráðuneyti eða á herðar þingsins. Það er eðlilegt að fela hana Þróunarfélagi, eins og gert var, með aðkomu þeirra ráðuneyta sem við eiga og sveitarfélaganna suður frá. Það er óhætt að segja að þetta þróunarfélag fari mjög vel af stað. Þeir hafa auglýst hressilega, þeir hafa kallað eftir hugmyndum. Mér er kunnugt um að á annað hundrað hugmyndir hafa þegar komið inn til þeirra og er nú verið að vinna úr þeim. Ég hygg að menn sjái ekkert annað en tækifæri fyrir svæðið með þeim breytingum sem orðið hafa við það að varnarliðið fór og í þeim miklu mannvirkjum (Forseti hringir.) sem íslenska ríkið á núna og hyggst ráðstafa.