varnarsvæði á Miðnesheiði.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. fyrirspyrjanda, Björgvini G. Sigurðssyni, fyrir að vekja athygli á þeirri þróun sem er að eiga sér stað á varnarsvæðinu á Miðnesheiði. Það kom í ljós í svari hæstv. ráðherra að skýrsla um þessi mál er ekki til að svo stöddu. Ég tel rétt að benda hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni á þá staðreynd að hið nýstofnaða þróunarfélag hefur opnað heimasíðu um starfsemina og virðist í alla staði vera mjög aðgengilegt félag. Upplýsingar eru líklega mjög auðsóttar og þar af leiðandi hægt að beina fyrirspurnum beint til félagsins.
Ég vil líka vekja athygli á orðum hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar um að það sé mikilvægt að vinna þetta mál hratt. Hér vil ég staldra örlítið við, virðulegur forseti. Það er staðreynd að ekki er atvinnuleysi á þessu fyrrum varnarsvæði og um er að ræða mjög mikilvægt atvinnusvæði til langrar framtíðar. Ég tel því rétt að menn flýti sér hægt í að skipuleggja svæðið og ákveða (Forseti hringir.) endanlega hvað taki við.