varnarsvæði á Miðnesheiði.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa ágætu umræðu. Það er ljóst að ekki hefur farið fram á vegum hæstv. ráðherra nein úttekt á ástandi og mögulegum notum af svæðinu heldur hefur það alfarið verið falið þróunarfélaginu og gott og vel. Það er nú samt bagalegt, það hefði verið heppilegt að það færi fram heildstæð úttekt sem lægi hér fyrir. Ég ítreka að það þarf að ganga mjög örugglega til verks. Þó að atvinnuleysi sé ekki himinhátt á svæðinu er það samt yfir landsmeðaltali, eitthvað um 3%. Það er ekki einungis það sem rekur á eftir, það þarf að koma mannvirkjunum hið fyrsta í not, arðbær borgaraleg not eins og hæstv. ráðherra sagði hér áðan.
Þar hljótum við sérstaklega að horfa til háskólastarfsemi af einhverju tagi sem væri mjög heppileg á þessu svæði. Einn hv. þingmaður nefndi hér áðan að flytja Háskólann í Reykjavík eins og hann legði sig og breyta honum í Háskólann í Reykjanesbæ. Það er í sjálfu sér ágætishugmynd ef hún fær góðar undirtektir skólastjórnenda og forráðamanna þar.
Það blasir alla vega við að í þessum yfirgefnu hernaðarmannvirkjum á Miðnesheiði felast gífurlega mörg tækifæri til einstakrar sóknar. Dyr opnuðust að nýjum tímum fyrir þetta svæði þegar herinn fór og allar þessar byggingar urðu þarna eftir. Það er engin spurning að nýta þarf þau tækifæri eins og kostur er hið allra fyrsta. Þess vegna hefði verið fróðlegt að heyra þó ekki væri nema viðhorf og framtíðarsýn hæstv. utanríkisráðherra í þessum efnum. Þó svo að formlega sé framkvæmdin á könnu Þróunarfélagsins er ekki þar með sagt að ríkisstjórn Íslands hafi afsalað sér hinni pólitísku ábyrgð á málinu og seinagangur eða tafir á framvindunni séu einhverjum öðrum að kenna. Þess vegna hefði verið fróðlegt að heyra (Forseti hringir.) framtíðarsýn ráðherrans í þessu máli.