þjóðvegur á Akranesi.
Hæstv. forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. Jóhann Ársælsson sagði, ég held að það sé algjörlega rétt hugsun og eigi jafnt við um Akranes og aðra staði að helstu flutningsleiðir séu ekki jafnframt þær akstursleiðir sem liggja inn í bæjarkjarnana. Það mættu gjarnan vera fleiri en ein akstursleið inn í bæjarkjarnann. Ég held að þetta sé mjög þörf ábending og á náttúrlega við á fleiri stöðum en Akranesi.
Ég vil hins vegar spyrja hæstv. samgönguráðherra hvort við getum skilið svar hans þannig að gengið verði til samninga við Vegagerðina innan örfárra vikna þannig að framkvæmdir hefjist þegar í vor, t.d. í aprílmánuði eða eitthvað slíkt. Eigum við að skilja svar hæstv. samgönguráðherra með þeim hætti?