strætisvagnaferðir milli Akraness og Reykjavíkur.
Virðulegi forseti. Ég kem hér öðru sinni með fyrirspurn sem ég vil leggja fyrir hæstv. samgönguráðherra. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Telur ráðherra ásættanlegt að strætisvagnar fari milli Akraness og Reykjavíkur fullskipaðir fólki þannig að farþegar standi jafnvel í vögnunum á leiðinni?“
Ég vil taka það skýrt fram í upphafi máls míns að með þessari fyrirspurn er ég hvorki að kasta neinni rýrð á það fyrirtæki sem hefur stundað rekstur strætisvagna milli Akraness og Reykjavíkur né þá sem hafa starfað við þann rekstur, m.a. sem bílstjórar, alls ekki. Það fólk hefur allt saman staðið sig ákaflega vel á öllum sviðum, bara svo að það sé alveg á hreinu.
Hins vegar taldi ég rétt að vekja athygli á þessu í þingsölum vegna þess að við vitum að samkvæmt lögum er ekkert sem bannar að fólk standi í strætisvögnum. Þessar ferðir eru á milli Akraness og Reykjavíkur um þjóðvegakerfi landsins og eftir því sem ég best veit er þetta hreinlega skilgreint bara sem strætisvagn og það er ekkert sem bannar að fólk standi í vögnunum á leiðinni. Ég vildi vekja athygli á þessu.
Ég tel að það sé augljós slysahætta þegar fólk stendur í strætisvögnum sem keyra fjölfarinn þjóðveg eins og Vesturlandsveginn milli Akraness og Reykjavíkur sem oft og tíðum hefur reynst varasamur, bæði með tilliti til veðurs og umferðar. Vagnarnir eru náttúrlega á töluverðum hraða eins og hraði umferðarinnar bara er um þennan veg. Þarna gæti farið illa ef eitthvað bæri út af.
Við vitum að í sumum tilfellum og sérstaklega þegar umferðin er mikil eða farþegar margir stendur fólk í vögnunum á þessari leið og þess vegna taldi ég, eins og ég sagði áðan, rétt að bera fram þessa fyrirspurn, þ.e. hvort ráðherra telji ásættanlegt að strætisvagnar fari þarna á milli fullskipaðir fólki þannig að farþegar standi jafnvel í vögnum á leiðinni. Er ekki tímabært fyrir okkur sem störfum á löggjafarþinginu að hugleiða hvort ráðlegt sé að setja lagabókstaf sem hreinlega bannar að fólk standi í strætisvögnum sem fara um hluta af þjóðvegakerfi landsmanna?