heilsufar erlendra ríkisborgara.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson hefur beint til mín þeirri fyrirspurn hvort gerðar séu einhverjar athuganir á heilsufari erlendra ríkisborgara sem koma hingað til lands um lengri tíma. Sé svo, óskar þingmaðurinn upplýsinga um hvaða athuganir séu gerðar.
Því er til að svara að um langt árabil hefur heilbrigðiseftirlit með dvalarleyfisumsækjendum verið í samræmi við tilmæli heilbrigðisyfirvalda um læknisrannsókn. Áður fyrr var ekki nein lagastoð fyrir slíkum kerfisbundnum rannsóknum. Því voru sett þau ákvæði í sóttvarnalög árið 2000 að ef sóttvarnalæknir teldi hættu á að næmar sóttir sem ógnað gætu almannaheill bærist til landsins gæti hann beint tilmælum til ráðherra um að setja reglugerð um að þeir sem koma til landsins og talin var hætta á að bæru með sér slíkar sóttir skyldu sæta læknisrannsókn. Um framvísun heilbrigðisvottorðs vegna dvalar- og atvinnuleyfis er fjallað í reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 339/2005, lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og reglugerð um útlendinga, nr. 53/2003. Ekki er þar sérstaklega tilgreint hvaða kröfur eru gerðar til slíks heilbrigðisvottorðs.
Ef slíkar kröfur eru gerðar er mikilvægt að hafa í huga að fólk með erlent ríkisfang kemur til landsins af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi getur verið um að ræða ferðamenn sem hafa heimild til að vera hér á landi í allt að þrjá mánuði. Undir venjulegum kringumstæðum eru engar kröfur gerðar um að þeir framvísi heilbrigðisvottorði, enda tíminn sem þeir dvelja hér á landi það stuttur að líkurnar eru litlar á því að þeir ógni heilsu manna.
Í öðru lagi getur verið um að ræða fólk sem kemur hingað til náms eða tímabundinna starfa og hyggst dvelja lengur en þrjá mánuði. Samkvæmt áðurnefndum lögum og reglum þurfa þessir einstaklingar að framvísa heilbrigðisvottorði vegna umsóknar um dvalarleyfi ef viðkomandi kemur frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins. Hið opinbera gerir kröfur til þess að þessir einstaklingar séu ekki haldnir bráðsmitandi sjúkdómum sem ógnað geta heilsu manna. Sóttvarnalæknir hefur birt sérstakar verklagsreglur um læknisrannsókn þeirra sem koma til starfa tímabundið. Miðast þær við að almennt heilsufar er kannað jafnframt því að kannað er hvort viðkomandi er haldinn smitandi berklum. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að vinnuveitandi getur gert kröfur um að tilteknum viðbótarskilyrðum sé fullnægt við læknisrannsókn vegna heilbrigðisvottorðs vegna atvinnu.
Í þriðja lagi eru þeir sem sækja um dvalarleyfi með framtíðarbúsetu hér á landi í huga. Þá er mikilvægt að horfa til alvarlegra smitsjúkdóma en ekki einungis bráðsmitandi sjúkdóma. Ástæðan fyrir þessu er sú að eftir því sem dvalist er lengur í landinu aukast líkurnar á smitun til annarra. Þeir smitsjúkdómar sem sérstök ástæða er til að fylgjast með um þessar mundir hjá fólki sem flyst til landsins er HIV-smit, lifrarbólga B og berklar. Einnig get ég upplýst að í undirbúningi er reglugerð um sóttvarnaráðstafanir þar sem verklag við læknisrannsókn vegna dvalar- og atvinnuleyfis er nánar skýrt. Einnig er í reglugerðinni fjallað um greiðsluhlutdeild og tryggingar sem tengjast þessum rannsóknum. Þar er tekið mið af sóttvörnum og skulu þær fylgja verklagsreglum sóttvarnalæknis.
Heilbrigðisvottorð sem dvalarleyfisumsækjendur þurfa að leggja fram hér á landi eru því annars vegar kröfur opinberra aðila og hins vegar kröfur vinnuveitenda þegar sótt er um atvinnuleyfi vegna sérstakra aðstæðna á vinnustað. Opinberar kröfur um slík heilbrigðisvottorð eru gerðar í samræmi við reglugerð um útlendinga og í lögum um atvinnuréttindi útlendinga fyrst og fremst í því augnamiði að tryggja að sá sem hyggur á búsetu hér á landi, hvort sem það er tímabundið eða til langframa, sé ekki haldinn smitsjúkdómi sem ógnað geti almannaheill. Eftir atvikum er einnig heimilt að gera kröfu um læknisrannsókn vegna aðsteðjandi heilsufarsógna og skiptir þá ekki máli af hvaða þjóðerni viðkomandi er.
Ástæða er til að benda á að læknisrannsókn á dvalarleyfisumsækjendum við komu til landsins gagnast öllum. Innflytjendur fá tækifæri til að njóta lækninga og meðferðar og tækifæri skapast til að hindra útbreiðslu smitsjúkdóma hér á landi. Það er þó ekki síður mikilvægt að benda á að þetta er fyrsta tengingin við íslenska heilbrigðisþjónustu. Það er afar mikilvægt að nýta þetta tækifæri til að upplýsa um heilbrigðisþjónustuna og sjá til þess að farsæl og eðlileg samskipti skapist til frambúðar við hana. Um þessar mundir er verið að vinna að nánari útfærslu þessa þáttar, t.d. með upplýsingabæklingum á erlendum tungumálum og með bættri túlkaþjónustu.
Virðulegi forseti. Þegar öllu er á botninn hvolft er góð heilbrigðisþjónusta og heilsugæsla það sem skiptir máli fyrir alla þá sem búa hér á landi. Ég tel að þessi mál séu í eðlilegum farvegi og vil benda á að þó að hér hafi verið nefndar tölur um hve hátt hlutfall útlendinga beri berklabakteríuna í sér er ekki þar með sagt að menn séu smitandi þó að þeir beri bakteríuna í sér og það er til lækning við þessum sjúkdómi. Ég tel því að engin sérstök hætta sé hér á ferðum og ber fullt traust til sóttvarnalæknis sem hefur yfirumsjón með þessum málum.