heilsufar erlendra ríkisborgara.
Virðulegi forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra nefnir ræðu formanns Frjálslynda flokksins máli sínu til stuðnings og talar um umræður sem hafi farið fram á landsþingi Frjálslynda flokksins. Ég tel að áður en hæstv. heilbrigðisráðherra, sem á sæti í ríkisstjórn Íslands, kemur með svona fullyrðingar hér á hinu háa Alþingi þá sé það lágmarkskrafa að hæstv. ráðherra færi einhver rök máli sínu til stuðnings. Mér þætti vænt um að heyra hvort hæstv. heilbrigðisráðherra hafi virkilega lesið ræðu formanns Frjálslynda flokksins (Gripið fram í.) og mér þætti vænt um að heyra hvort hæstv. heilbrigðisráðherra hafi heyrt einhverjar umræður af landsþingi Frjálslynda flokksins um málefni innflytjenda. Þær fóru nefnilega ekki fram. Það var lesin upp stjórnmálaályktun, hún var samþykkt, það fóru ekki fram opnar umræður. Formaðurinn flutti ræðu, fjallaði þar um þennan mikilvæga málaflokk. Það er hægt að lesa stjórnmálaályktun Frjálslynda flokksins á vefsíðu Frjálslynda flokksins xf.is. Það er líka hægt að lesa ræðu formannsins á vef Frjálslynda flokksins xf.is.
Ég held að það hljóti að vera lágmarkskrafa að fyrrverandi ritari Framsóknarflokksins og núverandi ritari Framsóknarflokksins, núverandi hæstv. heilbrigðisráðherra komi í ræðustól og færi rök fyrir máli sínu, bendi efnislega á hvað það var í stjórnmálaályktun Frjálslynda flokksins sem var svona skelfilegt, hvað það var í ræðu formanns Frjálslynda flokksins sem var svona skelfilegt, í staðinn fyrir að koma hér aftur og aftur og kasta í kringum sig einhverjum innistæðulausum fullyrðingum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.
Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur ekki gert það. Hún kastar í kringum sig einhverjum ákveðnum frösum, einhverjum smjörklípum á Frjálslynda flokkinn en ef fólk les ræðu formanns Frjálslynda flokksins, ef fólk les stjórnmálaályktun Frjálslynda flokksins um málefni innflytjenda og ég gerði það hér á Alþingi í gær — ég vona að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi hlustað á þá umræðu þó að ég efist reyndar stórlega um það — þá kemur það bara fram þar þegar fólk les þann texta og kynnir sér þessi mál að það var ekki verið að segja neitt ljótt, (Gripið fram í.) það var ekki verið að segja neitt neikvætt. Það var ekki verið að ala á mannfyrirlitningu, það var ekki verið að ala á hatri, það var ekki verið að gera út á neina andúð.
Það var bara verið að benda á að við þyrftum að ræða tiltekin mál í þjóðfélaginu og enn og aftur ítreka ég það að við í þingflokki Frjálslynda flokksins teljum það hreinlega skyldu okkar að taka þessi mál til umræðu, til efnislegrar og málefnalegrar umræðu í þjóðfélaginu og líka hér á hinu háa Alþingi. Það er skylda okkar. Hvort þingmenn Framsóknarflokksins og ráðherrar Framsóknarflokksins telji það hins vegar ekki falla undir sín skyldustörf þá skal það vera svo, það er þá bara þeirra vandamál sem þeir hljóta að eiga við kjósendur. En það skal alveg vera á hreinu, við í Frjálslynda flokknum erum óhrædd að taka þessi mál upp eins og önnur mál í þjóðfélaginu og ræða þau opinskátt og af hreinskilni. Þeir sem vilja kynna sér það sem hefur verið sagt, til að mynda á landsþingi Frjálslynda flokksins, geta gert það á heimasíðu flokksins. Við höfum ekkert að skammast okkar fyrir þar, ekki nokkurn skapaðan hlut.