133. löggjafarþing — 68. fundur,  7. feb. 2007.

afsláttarkort vegna lækniskostnaðar.

483. mál
[15:27]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ber fram fyrir fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um afsláttarkort vegna lækniskostnaðar. Þetta er ekki í fyrsta skipti og ekki í annað skipti sem ég ræði þessi mál, ég er að spyrja út í breytingar á fyrirkomulagi til þess að auðvelda fólki, þá aðallega sjúklingum náttúrlega, að njóta þeirra kjara sem afsláttarkortin bera með sér.

Ég spyr hæstv. ráðherra:

1. Hvaða aðgerða er þörf svo að afsláttarkort vegna lækniskostnaðar berist fólki sjálfkrafa þegar hámarksgreiðslum er náð?

2. Hvenær mun Tryggingastofnun ríkisins taka upp slíkt kerfi þannig að fólk þurfi ekki að halda til haga öllum kvittunum og bera sig eftir kortunum?

3. Hefur verið veitt fé til að koma slíku kerfi á og hvað mun það kosta Tryggingastofnun, Landspítala – háskólasjúkrahús, heilsugæsluna og aðra, og þá hverja?

Mig langar til að bæta við einni spurningu, fjórða lið: Hvenær gerir hæstv. ráðherra ráð fyrir að hætt verði að miða við almanaksárið eins og það er í dag, en frekar miðað við tólf mánaða tímabil eins og er víða annars staðar í heilbrigðiskerfinu þar sem ekki er miðað við almanaksárið?

Ég lagði sams konar fyrirspurn fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra sem þá sat í ráðuneytinu fyrir einu og hálfu ári og þá sagði hann að rafrænar upplýsingar og sjálfkrafa afgreiðslu afsláttarkortsins yrði komið á um næstu áramót, þ.e. fyrir rúmu ári síðan. Það er sem sagt rúmt ár síðan þetta átti að vera komið á.

Núna um áramótin tilkynnti Tryggingastofnun ríkisins að kortin kæmu sjálfkrafa en aðeins þegar greitt hefði verið fyrir þjónustu sérfræðilækna. Það er bara brot af þeim greiðslum sem veita réttinn fyrir afsláttakortinu, þ.e. það komi ekki fyrir greiðslu þegar farið var á heilsugæslustöðina, á göngudeildina, eða á bráðadeildina o.s.frv. Greiðsla fyrir þjónustu sérfræðilækna er því bara brot af þeim greiðslum sem veita réttinn til afsláttarkortsins. Áfram þurfa menn að safna kvittunum, fara til Tryggingastofnunar og fá kortin þar.

Það var talað um það fyrir rúmu ári, þegar ég ræddi þessi mál síðast, að Tryggingastofnun þyrfti 21 milljón til að koma þessu á og sú fjárveiting ætti að koma. Nú var mér sagt hjá Tryggingastofnun ríkisins þegar ekki var staðið við þau orð og ekki var hægt að koma með sjálfkrafa-kortin fyrir ári, að stofnunin hefði ekki fengið umrædda fjárveitingu og því hefði ekki verið hægt að standa betur við þetta en fram hefur komið. Því bið ég hæstv. ráðherra að svara þeim fyrirspurnum (Forseti hringir.) sem ég hef beint til hennar.