Tónlistarþróunarmiðstöðin.
Frú forseti. Við alþingismenn fáum fjöldann allan af boðum um að mæta á fundi og ráðstefnur og ýmiss konar uppákomur. Í janúar barst okkur tölvupóstur með boði á tónleika sem báru heitið Járn í járn. Þessir tónleikar voru haldnir í þeim tilgangi að vekja athygli á starfsemi Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar. Ég fór og kynnti mér þessa starfsemi, hitti frumkvöðlana og nokkrar hljómsveitir. Ég verð að viðurkenna að ég var mjög hrifinn af því sem ég sá og heyrði og ákvað því að hreyfa við þessu máli í dag. Þarna fær ungt hæfileikafólk á tónlistarsviðinu tækifæri til að vaxa og þroskast við tómstundaiðju sína undir eftirliti og handleiðslu umsjónarmanna. Gróskan í íslenskri tónlist er ekki tilviljun heldur afrakstur ötuls starfs frumkvöðla.
Tónlistarþróunarmiðstöðin er við Hólmaslóð í Reykjavík. Þar eru 15 æfingarými og þar æfa nú um 50 hljómsveitir. Flestar eru þær skipaðar ungu fólki og þarna eru þau undir eftirliti í húsnæði sem er vaktað og meðferð áfengis og vímuefna er bönnuð.
Tónlistarþróunarmiðstöðin er byggð upp að sænskri fyrirmynd. Þar opnuðu einkaaðilar æfingahúsnæði fyrir um 15 árum. Fljótlega varð allt fullt og yfirvöld félags- og tómstundamála borgarinnar og sænska ríkið sáu sér hag í að koma að rekstri húsnæðisins vegna þess félags- og forvarnagildis sem það hafði. Í Svíþjóð eru menn á einu máli um að þetta æfingahúsnæði og önnur sem spruttu upp í kjölfarið séu vagga sænskrar nýsköpunar í tónlist.
Gróskan í íslenskri tónlist sem kristallast á Airwaves-tónlistarhátíð ár hvert er ekki tilviljun heldur uppskera ötuls starfs frumkvöðla og sá tónlistarmaður sem okkur er kannski efst í huga í dag hlaut einmitt eldskírn sína hér á landi hjá Tónlistarþróunarmiðstöðinni. Hér er ég að tala um Elísabetu Lovísu sem gengur undir listamannsnafninu Lay Low.
Frú forseti. Nú er staðan þannig að framtíð Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar er óljós vegna fjárskorts. Rekstrarkostnaður er um 20 millj. á ári og félagsmenn, sem eru um 750, greiða um 11,5 millj. á ári í félagsgjöld og húsaleigu. Ég fæ ekki betur séð en að Tónlistarþróunarmiðstöðin sinni góðu starfi í þágu tónlistar og að þar þrífist jafnframt góður og uppbyggjandi félagsskapur fyrir ungt fólk. Í ljósi alls þessa og til að fá umræðu um málið spyr ég hæstv. menntamálaráðherra:
1. Hvernig kemur ráðuneytið að starfsemi Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar?
2. Veitir ráðuneytið miðstöðinni fjárhagslegan stuðning? Ef svo er ekki, hefur ráðherra fyrirætlanir um að veita henni slíkan stuðning?