133. löggjafarþing — 69. fundur,  12. feb. 2007.

mannabreytingar í nefndum.

[15:01]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins, Hjálmari Árnasyni, um mannabreytingar í nefndum:

„Þingflokkur framsóknarmanna hefur ákveðið í samræmi við 16. gr. þingskapa að Jón Kristjánsson taki sæti Kristins H. Gunnarssonar í landbúnaðarnefnd, að Hjálmar Árnason taki sæti hans í sjávarútvegsnefnd og Guðjón Ólafur Jónsson í umhverfisnefnd. Enn fremur að Dagný Jónsdóttir taki sæti Kristins H. Gunnarssonar í Íslandsdeild Evrópuráðsins og Hjálmar Árnason taki sæti hans sem varamaður í Íslandsdeild ÖSE.“