frammíköll.
Hæstv. forseti. Ég kveð mér hér hljóðs undir liðnum um fundarstjórn forseta til að kvarta undan því að þurfa að sæta því að hlusta á blótsyrðagusur af hálfu hv. þm. Steingríms Jóhanns Sigfússonar á meðan ég flyt ræður hér á þinginu. Ég kvarta ekki yfir því að menn kalli hér fram í í ræðum mínum en ég er alinn upp í kristnum sið og kann því illa að menn blóti hér sýknt og heilagt.
Þetta er í annað skipti, hæstv. forseti, sem ég verð vitni að því að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon stendur hér og æpir blótsyrði yfir þingsalinn. Ég vil þess vegna beina því til hæstv. forseta að hann taki á þessu máli, annaðhvort úr ræðustóli eða með hv. þingmanni í einrúmi.
(Forseti (SP): Forseti vill nú segja það að almennt ber hv. þingmönnum að gæta að orðbragði hér í þingsalnum.)