niðurstöður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna.
Frú forseti. Umræða og viðbrögð við loftslagsbreytingum af mannavöldum hafa lengi verið í brennidepli í alþjóðlegri umræðu. Í nýrri loftslagsskýrslu Sameinuðu þjóðanna er hnykkt enn frekar á fyrri niðurstöðum um hraða þeirra breytinga. Engin þjóð getur skorast undan ábyrgð, brýnasta úrlausnarefnið nú er að ná Bandaríkjunum og Ástralíu, sem ekki eru aðilar að Kyoto, að samningaborðinu ásamt stóru þróunarlöndunum, Kína og Indlandi.
Þegar staða Íslands er borin saman við aðrar þjóðir er ljóst að við erum öfundsverð og við verðum ekki í neinum vandræðum með að standa við okkar skuldbindingar. Flestar aðrar þjóðir eiga í miklum erfiðleikum með að standa við sitt svo sem margar Evrópusambandsþjóðir og þar með talið Norðurlandaþjóðirnar Finnar og Danir, af því að það var nefnt áðan af hv. síðasta ræðumanni.
Eitt af lykilhugtökum í umræðunni um loftslagsmál er endurnýjanleg orka. Það er nú bara einu sinni svo að Íslendingar eru heimsmeistarar í nýtingu endurnýjanlegrar orku, bæði jarðvarma og vatnsafls. Engin önnur þjóð kemst með tærnar þar sem við höfum hælana í þeim efnum. Það skiptir auðvitað öllu máli fyrir okkur Íslendinga að nýta náttúruauðlindir okkar skynsamlega, taka ákvarðanir á okkar forsendum í samræmi við hugsjónir sjálfbærrar þróunar um verndun umhverfisins, efnahagsvöxt og félagslega þróun og skoða málin heildstætt, hvar á að friða og hvar á að virkja. Við þurfum að byggja allar okkar ákvarðanir á bestu fáanlegu þekkingu og upplýstri umræðu. Brýnt er að ljúka vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, stórefla rannsóknir á náttúru landsins og móta langtímastefnu í þessum efnum. Okkur liggur ekkert á, orkuverð kemur bara til með að hækka. Það eru mörg tækifæri fyrir okkur Íslendinga og við eigum áfram að halda (Forseti hringir.) þannig á spöðunum að við verðum forustuþjóð í umhverfismálum.