niðurstöður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Stjórnmálamenn um víða veröld vita nú að afleiðingar loftslagsbreytinganna eru geigvænlegar. Allir óháðir vísindamenn telja að breytingarnar séu af mannavöldum. Hér heima höfum við vitað að hlýnunin er tvisvar til þrisvar sinnum meiri á norðurslóð en annars staðar í heiminum frá því að skýrsla Norðurskautsráðsins var kynnt árið 2004.
Loftslagsbreytingarnar verða ekki stöðvaðar en það er hægt að hægja á þeim. Tíminn til athafna er núna strax en ekki eftir 20–30 ár því að þá verða vandamálin stærri og kostnaður við þau meiri, segir umhverfisverðlaunahafi Norðurlandaráðs, Bogi Hansen.
Staðreyndirnar blasa við. Meðalhiti á Norðurlöndum mun hækka um 2–3 gráður. Ís og snjór bráðnar og nú er norðurskautsísinn tveim milljónum ferkílómetra minni en fyrir 30 árum. Sjávarborð mun að óbreyttu hækka um 20–70 sentímetra. Þetta er ófögur framtíðarsýn, hún varðar fólk og hún er mannanna verk.
Stefna ríkisstjórnarinnar í virkjunar-, stóriðju- og loftslagsmálum er að hafa ekki stefnu, vísa frá sér ábyrgð. Samfylkingin hefur kynnt nýja atvinnulífið, stefnu sem fellur að stefnumörkun flokksins um Fagra Ísland þar sem mat á náttúrunni er lagt til grundvallar öllum ákvörðunum um nýtingu.
Umhverfisráðherrann sagði ekki orð um hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda í svari sínu áðan. Stóru spurningunni hvort Ísland ætlar að skipa sér í framvarðarsveit þegar kemur að vinnu við nýja alþjóðasamninga eftir að Kyoto-bókuninni sleppir árið 2012 er enn ósvarað.