133. löggjafarþing — 69. fundur,  12. feb. 2007.

staðbundnir fjölmiðlar.

17. mál
[16:27]
Hlusta

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er glaður yfir því að þessi tillaga er komin aftur á dagskrá Alþingis og næst að ljúka 1. umr. og koma henni til nefndar aftur. Ég er einn af meðflutningsmönnum á þessari tillögu ásamt þingmönnum úr öllum fimm flokkunum sem eiga fulltrúa á Alþingi. Ég var mjög eindreginn stuðningsmaður þess þegar hv. þm. Dagný Jónsdóttir fór af stað með þessa tillögu, að mig minnir í upphafi kjörtímabilsins.

Það væri mikið fagnaðarefni ef tillagan fengi fram að ganga því að hún kveður á um að við felum menntamálaráðherra og Alþingi að skipa nefnd sem athugi stöðu staðbundinna fjölmiðla. Það er ekki verið að leggja neinar aðrar skyldur á herðar hæstv. menntamálaráðherra eða framkvæmdarvaldinu en að gera úttekt á stöðu og rekstrarumhverfi staðbundinna fjölmiðla. Um það hljótum við að geta náð sátt. Það ætti að geta orðið eitt af síðustu verkum þessa kjörtímabils að koma þeirri vinnu í gang þannig að ný ríkisstjórn í vor og nýtt Alþingi næsta haust geti unnið út frá því og sett einhvers konar reglur út frá því og nefndin skili síðan skýrslu til Alþingis. Þetta er ekki pólitískt átakamál, það er þverpólitísk sátt um að ráðast í þessa úttekt á stöðu staðbundinna fjölmiðla og rekstrargrunn þeirra. Við hljótum því að beita okkur fyrir því að tillagan fari alla leið núna og Alþingi samþykki þessa tillögu til þingsályktunar.

Þetta er nefnilega einn angi íslenskrar fjölmiðlunar sem, eins og segir í greinargerðinni, varð út undan í hinni miklu umræðu um íslenska fjölmiðlun sem hefur átt sér stað á síðustu árum — skilaði sér fyrst í hinum gríðarlega umdeildu fjölmiðlalögum árið 2004 og aftur í vinnuhópi á vegum menntamálaráðherra. Út úr þeirri vinnu komu drög að lagafrumvarpi, sem nú er búið að ræða í 1. umr. á Alþingi og er hjá menntamálanefnd. Hvað sem um það verður þá hefur aldrei verið tekið sérstaklega utan um staðbundnu miðlana sem skipta mjög miklu máli.

Ég var einmitt að velta því fyrir mér um daginn, þegar ég var að hlusta á svæðisútvarp Ríkisútvarpsins á Suðurlandi, sem útvarpar alla virka daga frá 17.30 til 18.00 — þar er verið að segja fréttir af ýmsu mannlífstengdu, hvort sem það eru brunar eða framkvæmdir eða menningarsamkomur eða skólastarfsemi og annað, sem mundi aldrei rata inn í landsmiðlana einfaldlega af því að þar er ekki rými og pláss fyrir það. Þeir miðlar sinna landinu öllu og þurfa að vera mjög „selektífir“ eins og þar stendur. Þarna er verið að fjalla um nærumhverfið og það er það besta við öflugan, staðbundinn fjölmiðil, sem er góður og sinnir sínu hlutverki af natni og nákvæmni en er ekki hlutdrægur eða pólitískur, að hann eflir samstöðu fólksins á svæðinu. Þannig hafa langflestir þessara fjölmiðla þróast, þetta eru ekki flokkspólitískir miðlar heldur reknir á forsendum svæðanna og efla samstöðu svæðanna. Þeir búa til eins konar hjarta í samfélaginu og þeir bæta búsetuskilyrði, þeir gera þau skemmtilegri. Þetta er miðill sem verður að svolítilli þungamiðju í bæjarlífinu og lífinu í hverju sveitarfélagi.

Starfsemi þeirra er náttúrlega mjög ólík. Það hefur orðið algengara að blöðum sé dreift frítt inn á hvert heimili, önnur eru í áskrift og sölu. Ástandið er mjög breytilegt. Á mínu svæði, Suðurkjördæmi, eru óvenjumargir öflugir fjölmiðlar. Í Vestmannaeyjum einum eru tvö blöð gefin út, í þessu rúmlega fjögur þúsund manna samfélagi koma tvö blöð út, Vaktin og Fréttir. Uppi á Suðurlandi er það Glugginn, Sunnlenska, Dagskráin og á Suðurnesjunum Víkurfréttir. Þetta eru allt mjög ólíkir miðlar en eiga það sameiginlegt að vera metnaðarfullir, staðbundnir fjölmiðlar sem sinna hlutverki sínu af miklum krafti. Ég held að það skipti máli að fara yfir stöðuna og kanna með hvaða hætti við getum bætt rekstrarumhverfi hinna staðbundnu fjölmiðla, hvort sem það er í gegnum einhvers konar ívilnanir hvað varðar dreifingu á blöðunum eða með öðrum hætti. Það eru margar leiðir til en fyrst er að gera þessa úttekt.

Ég er alveg viss um að eitt af því sem skiptir máli til að efla enn þá frekar mannlíf á landsbyggðinni er að tryggja að þessir fjölmiðlar — ég hef verið að telja upp úr stólnum þá fjölmiðla sem ég þekki best af því að ég nota þá í hverri einustu viku. Ég skrifa sjálfur greinar í þá og ég les þá mér til upplýsingar. Þarna fæ ég upplýsingar um mannlífið á mínu heimasvæði sem ég fengi ekki annars staðar, það væri sjálfsagt erfitt að afla þeirra, þær kæmu aldrei fram. Þessir fjölmiðlar gegna mjög mikilvægu hlutverki. Það er sjálfsagt að gera þessa úttekt. Alþingi hlýtur að geta sammælst um að samþykkja þessa þingsályktunartillögu sem kveður ekki á um annað en þetta. Svo getum við unnið út frá því næsta haust og bætt rekstrarumhverfi miðlanna, hvort sem það mundi þýða að við tækjum upp einhverjar ívilnanir í sambandi við dreifingu á blöðunum eða færum aðrar leiðir til að bæta rekstrarumhverfi þeirra.