133. löggjafarþing — 69. fundur,  12. feb. 2007.

Lánasjóður íslenskra námsmanna.

72. mál
[17:12]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að sá háttur sem hæstv. ríkisstjórn hefur haft á er afturför, þ.e. að menn þurfi að greiða töluvert meira núna fyrir nám þó að það sé falið undir öðrum heitum en áður. Gegn því gætum við sameinast um að berjast.

Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að gefa fólki frelsi til að velja. Það er eitt af grunngildum Samfylkingarinnar. Fólk á þess vegna að hafa val um það ef það kýs að verða sér úti um menntun annars staðar en t.d. á Íslandi og nema í öðrum löndum. Ríkið á hins vegar að bjóða upp á fullgildar námsleiðir á sem flestum námsbrautum innan lands. Menn hafa þá val um það hvort þeir fara þangað og stunda ókeypis nám. Hinn kosturinn er þá sá að fara utan, eins og ég nefndi, eða að fara í einhverja aðra af þeim háskólum sem hafa verið settir upp utan vébanda ríkisins en með framlögum frá því. Ef námsmaðurinn nýtir sér frelsið til að velja slíkt nám eigum við eigi að síður að ýta undir með honum með því að veita honum lán fyrir skólagjöldunum.

Af hverju er hægt að réttlæta það, frú forseti? Með því sem hv. þingmaður sagði hérna áðan, það skiptir samfélagið miklu að hækka menntastigið. Við eigum að koma upp sem flestum háskólum og sem mestum skólum sem víðast á landinu og gera allt sem við getum til að auka menntunarstig þjóðarinnar. Þetta er einn liður til þess og það er brýn nauður sem rekur á það einmitt núna þegar við erum að dragast aftur úr að ýmsu leyti í menntamálum í samanburði við nágrannaþjóðir undir forustu hins gagnmerka Framsóknarflokks ásamt Sjálfstæðisflokknum. Ég held að ég og hv. þingmaður gætum orðið sammála um þetta.