133. löggjafarþing — 69. fundur,  12. feb. 2007.

samkomulag við Færeyjar og Grænland um skipti á ræðismönnum.

69. mál
[18:10]
Hlusta

Flm. (Halldór Blöndal) (S):

Frú forseti. Þessi tillaga er sett fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins sem samþykkt var á ársfundi þess í sumar, 21. ágúst 2006, sem haldinn var í Þórshöfn.

Ályktunin ráðsins hljóðar svo:

„Vestnorræna ráðið skorar á ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að gera með sér samkomulag um að löndin skiptist á ræðismönnum. Löndin eru hvött til að koma sér upp sameiginlegum ræðismannsskrifstofum.“

Flutningsmenn ásamt mér eru fulltrúar Íslands í Vestnorræna ráðinu, hv. þingmenn Anna Kristín Gunnarsdóttir, Hjálmar Árnason, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Sigurjón Þórðarson.

Löng hefð er fyrir jákvæðu og víðtæku samstarfi vestnorrænna þjóða. Þær eru okkar næstu nágrannar og vináttutengslin eru náin. Jafnframt hefur verið nokkuð algengt að íbúar hafi flust milli landanna, starfað þar og búið.

Tengsl og samstarf landanna vex stöðugt að umfangi og vilji er í löndunum til að styrkja það enn frekar. Vestnorræna ráðið hefur árum saman unnið að því að efla tengslin og auka samstarf milli stjórnvalda landanna, íbúanna, atvinnulífs og vinnumarkaðar.

Ríki stofna oft ræðismannsskrifstofur og sendiráð í löndum sem þau tengjast nánum böndum, hafa víðtækt samstarf eða viðskipti við. Vestnorræna ráðið álítur að til þess að efla slík tengsl sé afar mikilvægt að löndin komi á fót launuðum ræðismannsskrifstofum, sem hafi diplómatíska stöðu, eða viðskiptafulltrúum hvert í annars löndum. Það mun auðvelda fólki að flytja milli landanna og starfa þar. Sömuleiðis mundi það efla möguleika vestnorræns atvinnulífs til að efla starfsemi sína landanna á milli. Síðast en ekki síst yrði það liður í að tryggja borgurum Vestur-Norðurlanda réttindi og hagsmuni ef þeir flytjast milli landanna.

Það er nú afráðið að íslenska ræðismannsskrifstofan verður opnuð í byrjun apríl í Færeyjum og í framhaldi af því verður unnið að því að koma á samsvarandi samstarfi milli okkar og Grænlands. Ég tel eigi að síður rétt, frú forseti, að tillagan fái hér þinglega afgreiðslu og legg til að henni verði vísað til utanríkismálanefndar.