sameiginleg stefna í ferðamálum fyrir Vestur-Norðurlönd.
Frú forseti. Sú tillaga sem hér liggur fyrir er flutt af okkur þingmönnum í Vestnorræna ráðinu, hv. þingmönnum Önnu Kristínu Gunnarsdóttur, Hjálmari Árnasyni, Sigurrósu Þorgrímsdóttur, Guðrúnu Ögmundsdóttur og Sigurjóni Þórðarsyni.
Ályktun Vestnorræna ráðsins er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Vestnorræna ráðið beinir þeim tilmælum til landstjórnar Færeyja, landstjórnar Grænlands og ríkisstjórnar Íslands að þær móti sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir Vestur-Norðurlönd sem svæði. Ráðið beinir þeim tilmælum til stjórnvalda landanna að hin sameiginlega stefna feli meðal annars í sér að sameiginleg markaðssetning Vestur-Norðurlanda sem ferðamannasvæðis verði efld. Vestnorræna ráðið mælist jafnframt til að stjórnir landanna geri áætlun um aukið samstarf um ferðamálamenntun á Vestur-Norðurlöndum.
Á ferðamálaráðstefnu Vestnorræna ráðsins í Maniitsoq 6.–9. júní 2006 ríkti mikill einhugur meðal þátttakenda um að Vestur-Norðurlönd ættu eftir megni að vinna saman að því að auka fjölda ferðamanna í löndunum. Jafnframt var eining um að mikilvægt væri að skilgreina á hvaða sviðum ferðamála væri hagkvæmt fyrir löndin að vinna saman.
Sameiginleg stefna vestnorrænu landanna í ferðamálum mun tryggja aukna athygli alþjóðlegra ferðamálafrömuða og stuðla að því að tryggja að markaðshlutdeild Vestur-Norðurlanda í ferðamálum minnki ekki heldur vaxi. Vestur-Norðurlönd geta boðið ferðamönnum upp á margs konar einstæða upplifun sem ekki er að finna annars staðar í heiminum, en nauðsynlegt er að Vestur-Norðurlönd komi því á framfæri við umheiminn hvað þau hafa að bjóða ferðamönnum framtíðarinnar.
Vestnorræna ráðið álítur mikilvægt að einn liður í sameiginlegri vestnorrænni stefnu og markaðssetningu í ferðamálum verði samstarf um menntun starfsfólks í ferðaþjónustu, m.a. með því að gefa því kost á því að sækja sér menntun gegnum fjarkennslu. Ráðið álítur að slík samvinna tryggi starfsfólki í vestnorrænni ferðaþjónustu bestu skilyrði í daglegu starfi sem kostur er á.
Löng hefð er fyrir samvinnu Vestur-Norðurlanda. Löndin geta haft hag af því að miðla hvert öðru af reynslu sinni í ferðaþjónustu.“
Það er löng hefð fyrir samvinnu milli Vestur-Norðurlanda á sviði ferðaþjónustu. Löndin geta haft hag af því og ég veit ekki betur en mikill vilji sé til þess að halda því samstarfi áfram í Vestnorden Travel Mart. Ég vil rifja það upp að það eru sennilega ein þrettán ár síðan að við tókum upp með skipulegum hætti nánara samstarf en áður á sviði ferðaþjónustu, annars vegar á milli okkar Íslendinga og Grænlendinga og ári síðar milli okkar og Færeyinga.
Ég var samgönguráðherra á þeim tíma og þá lögðum við einnig mikla áherslu á að ungt fólk, bæði frá Grænlandi og Færeyjum, gæti komið til Íslands til að kynna sér hvernig við stæðum að ferðaþjónustu hér heima og einnig til að afla sér menntunar á því sviði. Ég hygg að sú starfsemi hafi gefið mjög góða raun. Ég vil leggja til, frú forseti, að þessari tillögu verði vísað til utanríkisnefndar.