rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Herra forseti. Ég ætla ekki að halda hér langa ræðu, aðeins örfá orð sem spruttu aðallega í framhaldi af orðaskiptum mínum og hæstv. umhverfisráðherra hér áðan. Ég vil fyrst nota tækifærið og taka undir þakkir til hv. þm. Katrínar Fjeldsted og segja að það væri nú munur ef fleiri úr stjórnarherbúðunum fjölluðu um þessi mál á þeim nótum sem hv. þingmaður gerir.
Varðandi báxítið og þann enda mætti segja margar hryllingssögur af því, m.a. eins og hér var rakið frá Jamaíku og það er nú ekki allt par fallegt heldur sem gerist í aðalupprunalandi báxítsins og súrálsframleiðslunnar, Ástralíu, þó að þar sé meira landrými og sumpart aðrar aðstæður. Má ég þá líka minna á að áform stóðu til þess að reisa súrálsverksmiðju á Íslandi og það oftar en einu sinni. Það var t.d. bollalagt um það að reisa súrálsverksmiðju við Húsavík og vinna þar eina milljón tonna af súráli og afkasta tveimur milljónum tonna af rauðum leir og koma honum fyrir einhvers staðar í nágrenni við þann fallega bæ. Sem betur fer eru slík áform aflögð en þau voru svo sannarlega uppi og mönnum var dauðans alvara og ræddu um þetta sem álitlegan kost.
Varðandi stjórnsýsluþátt umhverfismála vil ég gera hér þá athugasemd að hæstv. umhverfisráðherra þarf ekki að brýna mig og okkur vinstri græn til dáða í þeim efnum. Það er þá rétt að halda til haga því að einmitt nefndarmaður okkar í nefnd iðnaðarráðherra gerir sterkan fyrirvara í séráliti sínu um stjórnsýsluþátt umhverfismála og gagnrýnir hvernig honum er fyrir komið í þessari vinnu, bendir á það að við höfum barist fyrir því að stjórnsýslufyrirkomulagi umhverfismála verði breytt í grundvallaratriðum, það þurfi að efla umhverfisráðuneytið sem meginstjórnstöð auðlindarannsókna og auðlindameðferðar til sjós og lands. Ráðuneytið þarf að fá hliðstæða stöðu í stjórnkerfinu og fjármálaráðuneytið og þannig verði markaður skýr grundvöllur fyrir valdsvið og forræði umhverfisráðuneytisins hvað varðar rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu og þær færist frá iðnaðarráðuneyti og eftir atvikum öðrum atvinnuvegaráðuneytum til umhverfisráðuneytis, þar með talin t.d. forusta um gerð rammaáætlunar.
Í því ljósi setti hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir, fulltrúi okkar í nefndinni, það inn í sinn fyrirvara að það væri ávinningur í því fólginn að forræði vinnunnar í framhaldinu færðist frá iðnaðarráðuneytinu til forsætisráðuneytisins því að það væri þó a.m.k. hlutlaust í þessu samhengi. Mér finnst skylt að hæstv. umhverfisráðherra hafi það í huga, okkar afstaða liggur alveg skýr fyrir í þessum efnum og við þurfum engin frýjunarorð í sambandi við það.
Varðandi málið síðan í heild sinni er það ósköp einfalt. Það verður engin þjóðarsátt um vettlingatök af þessu tagi. Það eina sem getur orðið einhver sátt um er algjört stopp, frysting og a.m.k. að ekkert verði gert frekar í þessum málum fyrr en bak kosningum. Það er lýðræðisleg krafa að þessi fúna ríkisstjórn á síðustu metrum lífs síns fari ekki að taka einhverjar ákvarðanir sem þvælist fyrir mönnum að loknum kosningum. Það er strax innlegg í þetta mál ef ríkisstjórnin heitir því, það er líka lýðræðisleg krafa þegar fram undan er vonandi nýr meiri hluti á Alþingi sem kemur til með að setja þessi mál í annan og betri farveg. Þá erum við að tala um eitthvað sem getur skipt máli í aðdraganda kosninganna en það er algerlega ónýtur málatilbúnaður hjá ríkisstjórninni að þessi ósköp dugi henni eitthvað til þess að fá þjóðina til að fyrirgefa sér í þessum efnum.