rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Forseti. Það er rétt, bæði hjá hæstv. iðnaðarráðherra og hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, að hér hefur margt breyst í atvinnulífinu og umgerð þess á síðustu árum og áratugum. Það á sér margar forsendur, m.a. inngönguna í hið Evrópska efnahagssvæði og ýmsar þær athafnir gagnvart markaðnum sem við höfum meira og minna öll hér á þinginu staðið fyrir undanfarið.
Hins vegar er það þannig að þegar sótt er í þá orku sem hér er föl á spottprís, svo ég noti venjulegt íslenskt mál, þá er það ekki þannig að menn leggi niður stóriðjustefnuna þó að ríkisstjórnin hætti að hafa bein afskipti af því að laða hingað stóriðjufyrirtæki. Það er auðvitað ekki þannig.
Stóriðjustefna hæstv. ríkisstjórnar kom ágætlega fram í fyrri ræðu iðnaðarráðherra þar sem hann ýjaði að því að það þyrfti að vera möguleiki á því að nota stóriðjuna sem einhvers konar innspýtingu í atvinnulífið, sem einhvers konar adrenalín eða amfetamín eða heróín í atvinnulífið þegar færi að dala aftur. Ef það er ekki stóriðjustefna þá veit ég ekki hvað stóriðjustefna er.