133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

málefni grunnskólakennara.

[12:08]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (U):

Virðulegi forseti. Það er mikil einföldun hjá hæstv. forsætisráðherra að halda því fram að honum komi þetta mál ekki við, að þetta sé viðfangsefni sveitarfélaga og þar með komi honum málið ekki við. Hann hafði aðeins fimm eða sex orð um málið í ræðustól áður en hann snaraðist úr honum aftur svo mikið lá honum á að sýna fram á að þetta kæmi honum ekkert við. En auðvitað kemur þetta ríkisstjórninni við vegna þess að sveitarfélög eru ekki fjárhagslega sjálfstæð, þau ráða ekki sínum lagaramma eða ákvæðum sem skammta þeim tekjur. Ríkisstjórnin og ríkisvaldið þarf að gæta þess að sveitarfélögin hafi tekjur til að standa undir þeim verkefnum sem þeim er ætlað að sinna og með þeim sóma sem þeim er ætlað gera það.

Má ég minna á að í síðustu viku mætti hæstv. forsætisráðherra á viðskiptaþing undir yfirskriftinni Best í heimi. Þar vildu menn vera bestir í heimi í því að borga litla sem enga skatta af miklum tekjum. Auðmenn Íslands mega ekki opna varirnar án þess að ríkisstjórnin kikni í hnjánum og boði skattalækkanir til að lækka þær léttu álögur sem á þeim eru í dag. Ekki er hægt að segja annað um fjármagnstekjuskattinn en að það séu hæfilegar álögur þegar menn borga 10% af tekjum en launamenn að jafnaði 25%. Best í heimi hjá hjá hæstv. forsætisráðherra var það að þeir sem borga 10% skatt af söluhagnaði á hlutabréfum eigi ekki að borga neitt. Það var 6 milljarða kr. ræða hjá ráðherranum sem hann afsalaði ríkinu í tekjum ef það gengur eftir. Hann hafði ekki nein orð um að skólinn ætti að vera bestur í heimi, að aðbúnaður barnanna ætti að vera sá besti í heimi. Engin orð höfum við heyrt um að þar eigi við kjörorðin Best í heimi, virðulegi forseti.