133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

málefni grunnskólakennara.

[12:16]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Mér finnst að hæstv. forsætisráðherra og þingmenn stjórnarflokkanna hafi umgengist þetta mál með nokkurri léttúð í þessari umræðu. Á undanförnum árum og áratugum höfum við mátt horfa upp á það að langtímum saman hafa skólar landsins verið lamaðir út af verkföllum og vinnudeilum. Á hverjum hefur það komið niður? Á nemendum. Hverjir bera ábyrgð á menntuninni í landinu? Það eru yfirvöld menntamála í landinu ásamt sveitarfélögunum. Það vill svo til að sömu yfirvöld skammta sveitarfélögunum það sem þau hafa til skiptanna og þau hafa ekki treyst sér til að semja um betri kjör við kennara en raun ber vitni.

Ríkisvaldið hefur hins vegar verið tilbúið til að hlaupa til og setja lög á vinnudeilur af þessu tagi. Hvernig í ósköpunum geta menn vísað þessari ábyrgð frá sér? Það er fráleitt og ég tel fulla ástæðu til þess að ríkisvaldið fylgist grannt með þessum samningaviðræðum og geri sveitarfélögum kleift að gera samninga sem eru eðlilegir og duga til að halda góðu fólki við störf í grunnskólum landsins og í öðrum skólum.

En það gerist auðvitað ekkert í því nema að viljinn sé fyrir hendi. Mér finnst hafa skinið í gegnum umræðuna að viljann skorti. Það er mjög vont. Ég tel að menn eigi að horfa í eigin barm og fara yfir þau mál út frá þeirri ábyrgð sem menn eiga að sýna þeim menntastofnunum sem hér er um að ræða, því fólki sem þar starfar, m.a. nemendum.