málefni grunnskólakennara.
Virðulegi forseti. Ég held að það hvarfli ekki að nokkrum einasta hv. þingmanni eða öðrum landsmönnum að tala um þessi mál af léttúð. Ég veit ekki af hverju hv. þingmenn ætla hver öðrum það. Það er auðvitað ekki svo.
Það lá hins vegar alveg fyrir, a.m.k. í fyrri ræðum hv. þingmanna, að þeir töluðu um að hlutverk sveitarfélaganna fram til þessa ætti að færast yfir til ríkisins. Það var ekki hægt að skilja það öðruvísi.
Ég vek athygli á því að þegar síðast var samið var vinstri meiri hluti í langstærsta sveitarfélaginu, þegar síðustu deilur voru. Hér kom hv. þm. Össur Skarphéðinsson og sagði að þetta hefði verið skelfilegur samningur sem sveitarfélögin gerðu við ríkið með yfirfærslu grunnskólans, sem góð sátt var um. Sveitarstjórnarmenn og hv. þingmenn vildu færa aukin völd og sjálfstæði til sveitarfélaganna. (BjörgvS: Og tekjustofna.)
Hér kemur hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson. Ég held að hann sé sammála hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni að þar hafi verið farið illa með sveitarfélögin. Hv. þm. Einar Már Sigurðarson, sem síðast þegar ég vissi var í fjárlaganefnd fyrir Samfylkinguna og þeirra helsti sérfræðingur, talar þannig úr þessum stól að þetta hafi verið besti samningur sem sveitarfélögin hefðu gert við ríkisvaldið. (Gripið fram í.) Hv. þm. Mörður Árnason kallar að hann sé fjarstaddur.
Virðulegi forseti. Ég og hv. þm. Einar Már Sigurðarson höfum hvað eftir annað talað um þetta hér. (BjörgvS: Einar getur ekki svarað þér.) Hann þarf ekki að bera af sér sakir vegna þess hann er sammála þessu. Þetta eru hans orð. (Gripið fram í.) Virðulegi forseti. Nú er að verða mikil taugaveiklun í salnum. Það er kannski spurning hvort ég fái (Forseti hringir.) smátíma til þess að klára.
En virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Það er auðvelt að fletta upp á því sem Einar Már Sigurðarson, hv. þingmaður Samfylkingarinnar hefur sagt um þessi mál. (Forseti hringir.) Það er mjög einfalt. Það skulum við gera.