133. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2007.

réttarstaða íslenskrar tungu og staða annarra tungumála í löggjöf og stjórnkerfi.

267. mál
[12:48]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Mörður Árnason) (Sf):

Forseti. Á þeim tíma sem liðinn er frá 26. maí 2004 kemur í ljós að ríkisstjórnin og hæstv. menntamálaráðherra hafa ekki litið á þessa þingsályktunartillögu og hafa auðvitað haft margt annað fyrir stafni. Svör ráðherrans við fyrri spurningunni voru í þrennu lagi, í þriðja lagi að stofnuð hefði verið Stofnun Árna Magnússonar og þar héldi Íslensk málnefnd áfram störfum sínum. Ég veit að Íslensk málnefnd hefur einmitt áhuga á þessari þingsályktunartillögu en það virðist ekki hafa komist til skila til menntamálaráðherra enn þá.

Í öðru lagi að dómsmálaráðherra vildi skylda útlendinga til að læra íslensku, þ.e. þá sem sæktu hér um ríkisborgararétt. Það hefur verið rætt áður við dómsmálaráðherra, er ekki ný hugmynd en skiptir litlu máli um réttarstöðu íslenskrar tungu eða annarra tungumála.

Og í fyrsta lagi sem hún nefndi var það að stjórnarskrárnefnd hefði rætt þetta en eins og fram kom hjá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni var það ekki fyrir tilverknað ríkisstjórnarinnar eða menntamálaráðherra heldur fyrir tilverknað minn sem 1. flutningsmanns þessarar tillögu og síðan Íslenskrar málnefndar sem sendi sérstakt erindi til stjórnarskrárnefndar um að íhuga þetta. Síðan hefur ýmislegt verið þýtt og hinar frægu 100 millj. hafa verið settar í fréttatilkynningar. Það ber auðvitað að þakka en ég vil ljúka þessum orðum með því að mér þykir sýnt að þar sem ríkisstjórnin hefur ekkert gert við þá tillögu sem til hennar var vísað hljótum við að flytja hana aftur á þessu þingi. Ég óska eftir góðu samstarfi við menntamálaráðherra um að tillagan verði samþykkt á þinginu og komist svo til framkvæmda undir stjórn næsta menntamálaráðherra en ég hyggst sem sagt beina því næst til menntamálaráðherra sem áður var beint til forsætisráðherra í þessu efni.