starf trúfélaga í grunnskólum og framhaldsskólum.
Herra forseti. Ég vil fyrst gera athugasemd til forsætisnefndar varðandi spurningar, þá er ég ekki að meina spurningarnar sem slíkar heldur að hér er um átta spurningar að ræða og ég hef frekar takmarkaðan tíma. Lykilatriðið í fyrirspurnatíma er að reyna að koma svörunum skilmerkilega á framfæri til fyrirspyrjenda og þess vegna hefði verið æskilegra til að koma svörunum öllum til skila að þetta hefði verið bútað niður í fleiri fyrirspurnir. En gott og vel, ég ætla samt að reyna að klára þetta í fyrra fallinu.
Það sem fyrirspyrjandi nefnir svokallaða vinaleið er þjónusta sem stendur grunnskólanemendum til boða í þremur sveitarfélögum í samstarfi við þjóðkirkjuna. Þetta snertir fyrstu spurninguna. Þessi sveitarfélög eru Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. Þjónustan er valfrjáls og aðeins veitt í samráði við og með samþykki foreldra eða forráðamanna. Vinaleiðin hefur verið í boði í Mosfellsbænum síðustu sjö árin, en í Garðabæ og Álftanesi var ákveðið í haust að gera tilraun með verkefnið sem byggir á reynslunni frá Mosfellsbænum. Að sögn þeirra sem hana bjóða er vinaleið hugsuð sem stuðningur við nemendur í tilfinningalegum vanda og sem forvarnaúrræði. Þjónustan er boðin til viðbótar við lögbundna sérfræðiþjónustu grunnskólans og er hvorki skilgreind sem meðferðarúrræði né námsráðgjöf. Eins og ég sagði er þessi þjónusta veitt í samstarfi við kirkjuna og fer fram með stuðningsviðtölum við nemendur. Að sjálfsögðu geta nemendur sem eiga í tilfinningalegum vanda, námsvanda eða hafa orðið fyrir áföllum utan skólans leitað til fjölbreytts hóps sérfræðinga, eins og t.d. skólahjúkrunarfræðings, skólasálfræðings, félagsráðgjafa, námsráðgjafa og kennsluráðgjafa. Vinaleiðin kemur alls ekki í staðinn fyrir þjónustu þessara sérfræðinga.
Vinaleiðin var mótuð af sérkennara í Varmárskóla í Mosfellsbæ sem vígð er til djákna í Lágafellssókn og á því rætur innan skólans en þróaðist áfram síðan í samstarfi við kirkju og skólana í Mosfellsbæ. Djákninn kemur í skólana sex tíma á viku, býður nemendum viðtalsþjónustu og vinnur að forvörnum.
Í Garðabæ og Álftanesi átti sóknarprestur frumkvæðið og kynnti verkefnið eins og það er framkvæmt í Mosfellsbæ fyrir skólastjórum og fleira starfsfólki grunnskóla. Þrír grunnskólar í Garðabæ auk Álftanesskóla hafa ákveðið að þiggja boð sóknarprestsins um samstarf, veita aðstöðu innan skólanna og kynna verkefnið fyrir nemendum og foreldrum. Nemendum er boðinn stuðningur einn dag í viku í hverjum skóla í samráði við foreldra. Verkefnið bar þannig að með mismunandi hætti í umræddum sveitarfélögum.
Þegar spurt er „Hver kostar þetta starf?“ er svarið á þann veg að í Mosfellsbæ er starfið kostað af sveitarfélaginu en í Garðabæ og Álftanesi eru ýmsir aðilar sem koma að því að kosta það, þar á meðal þjóðkirkjan, héraðssjóður Kjalarnesprófastsdæmis, Bessastaðasókn, sveitarfélagið Álftanes og fleiri. Framlag Garðabæjar er aðstaða í húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Ég ætla að svara fyrirspurnum þrjú og fjögur saman. Menntamálaráðuneytinu er ekki kunnugt um að grunnskólar eða framhaldsskólar hafi boðið öðrum trúfélögum eða lífsskoðunarfélögum starfsaðstöðu eða að taka sér svipaða starfsemi og vinaleiðina. Ef skólunum bærist tilboð um slíka þjónustu yrði væntanlega tekin afstaða til þeirra hvers fyrir sig. Stjórnendur skólanna mundu meta hvort það samrýmdist starfsemi þeirra og væri æskileg viðbót við aðra þjónustu sem í boði er enda er þetta algjörlega í samræmi við lagaákvæði sem nú eru í gildi um að grunnskólarnir séu á forræði sveitarfélaganna.
Varðandi fimmtu spurninguna hef ég sagt að vinaleiðin kemur ekki í staðinn fyrir lögboðna sérfræði- og stoðþjónustu skólanna við nemendur og fjölskyldur þeirra. Það er fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem starfar samkvæmt lögum á vegum sérfræðiþjónustu skóla og er nemendum vísað til þessara sérfræðinga eftir því hver er talinn geta veitt besta aðstoð í hverju tilviki.
Varðandi sjöttu spurningu hv. þingmanns: „Fylgjast sálfræðingar eða félagsráðgjafar á vegum skólanna, sveitarfélaganna eða ríkisins með þessu starfi í skólunum?“ eru sveitarstjórnir og skólanefndir í umboði þeirra sem hafa eftirlit með öllum sérfræðiþjónustuverkefnum eins og í öllu starfi sem unnið er í grunnskólum. Þessir aðilar fá í hendur skýrslur og starfsáætlanir grunnskólanna þar sem gerð er grein fyrir stoðþjónustu og sérverkefnum eins og vinaleiðinni.
Síðan ætla ég að svara spurningum sjö og átta saman. Þar er m.a. spurt hvort ráðherra þyki eðlilegt að aðeins eitt trú- eða lífsskoðunarfélag annist slík störf í opinberum skólum.
Þegar skólar taka ákvörðun um að nýta þjónustu félags, trúfélags í þessu tilviki, í þágu nemenda þarf skólinn að fara að fara að lögum og reglugerðum þar að lútandi. Menntamálaráðuneytið tekur hvorki sérstaka afstöðu til verkefnisins vinaleiðar né getur ráðuneytið lagt mat á gildi þess fyrir nemendur og foreldra eða forráðamenn. Ráðuneytið gætir þess hins vegar að sérfræðiþjónusta í grunnskólum uppfylli þær kröfur sem grunnskólalög gera til hennar, auk þess að við framkvæmd skólastarfs sé gætt jafnræðisreglu stjórnarskrár sem tryggir nemendum grunnskólans sem og öðrum þjóðfélagsþegnum að þeim sé ekki mismunað, m.a. á grundvelli trúarbragða. Þessi krafa hvílir að sjálfsögðu einnig á sveitarfélögunum. En í þessari umræðu má minna á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna sem er varinn af stjórnarskránni eins og við þekkjum.
Sveitarfélög og skólarnir undir forustu skólastjórnenda eru samkvæmt grunnskólalögum ábyrg fyrir skólastarfinu og vega það og meta í samvinnu við foreldra eða forráðamenn nemenda. Það er skólastjórnenda að ákveða hvort þeir nýti sér þjónustu utanaðkomandi aðila, hvort þeir vilji skapa henni aðstöðu innan veggja skólans.
Ég á eitthvað (Forseti hringir.) eftir að svara þessari spurningu en undirstrika að það eru sveitarfélögin sem ákveða að bjóða upp á þessa þjónustu og hún er hvorki hluti af lögboðinni skyldu- né (Forseti hringir.) sérfræðiþjónustu skólanna.